Saturday, December 31, 2011

Gleðilegt nýtt ár!

Já, enn eina ferðina er að koma nýtt ár.

Hvað skyldi gera þetta ár frábrugðnara hinum? Hvað gerist í mínu lífi á þessu ári? Aðeins tíminn getur svarað því, en á þessum tímamótum staldra ég oft við og lít yfir farinn veg.

Þetta ár, 2011, reyndist okkur litlu fjölskyldunni bara nokkuð vel á heildina litið.

Við eyddum stórum hluta sumarsins á litla skikanum okkar uppí sveit og sköpuðum góðar minningar sem við munum lifa við um ókomna tíð. Já, í sveitinni erum við að gera okkur lítinn griðastað og nú þegar er þetta orðið nokkuð notalegt með litlu gömlu hjólhýsi sem við komum þarna fyrir í sumar. Eitthvað erum við búin að planta niður af trjám og runnum, sem ég hlakka til að fylgjast með í framtíðinni stækka og dafna. Að sjálfsögðu munum við halda áfram að gróðursetja þarna, mikið verk er óunnið. En minningarnar sem koma til með að skapast þarna, ég hlakka til að skapa þær :)

Það var þónokkuð í fréttum á þessu ári um eldsvoðann í Eden í Hveragerði. Með mikilli sorg hugsa ég til fyrrum fjölskyldumeðlims sem var þar inni og lést. Hún Paco var yndislegur fugl, þó svo að á meðan hún var í minni eigu töldum við hana vera karlkyns ;) Henni fannst gaman að dansa og gat maður alltaf fengið hana í smá dans, og náði ég því meira að segja þegar ég hitti hana í síðasta sinn í febrúar þegar við gerðum okkur ferð til hennar í Eden. Hún var vissulega hávær, en maður fyrirgaf henni það alltaf þegar heyrðist "Halló" og smellir í góm ásamt fleiri hljóðum.
Ég vona að þú hafir það gott núna elsku vina, hef saknað þín sárt síðustu ár og hef átt svolítið erfitt með að sætta mig við hlutskipti þitt í lífinu.

 

Dóttirin hefur stækkað mikið og þroskast á liðnu ári. Nú í október héldum við uppá 4 ára afmælið hennar og fékk móðirin blauta tusku í andlitið, því henni fannst hún vera nýbúin að halda uppá 1 árs afmælið! Stelpan er mjög skýr í kollinum, og höfum við fengið mikið hrós fyrir hana á leikskólanum. Hún er mjög dugleg í kubbum, og reyndar þá kubbar hún á við krakka sem eru eldri en hún sjálf! Leikskólinn fékk nýlega svokallaða festikubba sem henni finnst mjög skemmtilegir, og var hún fljót að átta sig á því hvernig kubba skyldi litla píramída sem vakti mikla athygli leiðbeinanda hennar og leikskólastjóra. Við foreldrarnir íhuguðum að kaupa svona kubba handa henni í jólagjöf, en þeir eru alveg skelfilega dýrir svo við hættum við það, því miður :/ En dóttirin fékk í staðinn Legokubba frá kettinum sem hún er alsæl með, því þeir eru jú líka virkilega skemmtilegir ;)


Og já, talandi um köttinn. Hann kom einmitt til okkar í júní við mikla gleði og kátínu í fjölskyldunni. Sökum þess hvað hann eltir mig mikið á röndum lagði ég til að hann yrði kallaður Skuggi, og hefur það nafn náð að festast við hann. Hann hefur stækkað heil ósköp síðan við fengum hann, og sér ekki fyrir endanum á því hversu stór hann kemur til með að verða. Mamma hans er hreinræktaður norskur skógarköttur, og er mjög lítil og nett og falleg. Faðirinn hinsvegar er blanda af norskum skógarketti og maine coon, og er víst algjör heljarinnar risi! En til gamans má geta þess að maine coon er stærsta kattartegundin.

Miklar breytingar urðu varðandi skólamál hjá ektamanninum á þessu heimili. Já, eftir margra ára pásu skellti hann sér í skóla. Menntastoðir hjá Mími urðu fyrir valinu og er hann núna búinn með þrjú fög (eitt fag er tekið fyrir í einu) og náð þeim öllum með glæsibrag! :) Þessu námi líkur svo í júní, en veitir honum rétt til að hefja nám í einhverri af undirbúningsdeildum háskólanna.

Ég sjálf er smátt og smátt að taka mig í gegn. Er farin að hugsa meira um hvað ég læt ofaní mig og er meðvitað (og ómeðvitað) farin að borða hollar og fjölbreyttara fæði. Núna í nóvember byrjaði ég svo í Zumba í Reebook Fitness og hef mjög gaman að, ætla að halda áfram í janúar og eins lengi og ég vil :) Svo, eins kjánalega og þetta hljómar kannski, er ég farin að minnka til muna hettupeysunotkun. Það er alveg fáránlegt hvað ég var orðin háð því að vera í hettupeysum! Fékk skvettu í andlitið einn daginn þegar ég átti aukapening og ætlaði að versla mér peysu, þá fannst mér eins og það kæmi ekkert annað til greina en hettupeysa og ég fann ekkert nema slíkar peysur í fataskápnum mínum. Óþarft að segja, en þá hef ég breytt til og fundið mér aðrar peysur í öðrum stíl... en þetta var samt erfitt til að byrja með!
Ég byrjaði svo reyndar árið á því að hitta reglulega frábærar dömur við skipulagningu á bekkjarmóti sem var haldið í júní. Það tókst einkar vel og vona ég að allir hafi farið sáttir heim, í það minnsta er ég mjög sátt og vona að það líði ekki svona mörg ár aftur til næsta bekkjarmóts (10 ár.)
Prjónaskapurinn hjá mér gengur vel, mér finnst ég alltaf vera að læra eitthvað nýtt þegar ég hitti prjónahópinn minn í hverri viku. Við erum núna búnar að vera að hittast vikulega í næstum eitt og hálft ár og erum ekki nærrum því hættar!

En er ekki alltaf klassískt að blaðra um heilsuna líka í svona "annálum"? Jú ég held það...
Dóttirin hefur, sem betur fer, verið fílhraust á árinu. Einnig faðirinn og móðirin, jú og kötturinn ;)
Í vor fann ég reyndar fyrir verkjum fyrir brjóstinu og fór til heimilislæknisins vegna þess, hann úrskurðaði að þetta stafaði af vöðvabólgu og gaf í skyn að ég hreyfði mig ekki nóg. Hann hlustaði svo á hjartað og heyrði einhver aukahljóð, sökum þess sendi hann mig áfram til hjartalæknis sem heitir Uggi. Sú heimsókn var hin fínasta, og fór Uggi með mig í sónar á hjartanu sem mér fannst mjög spes reynsla. Hinsvegar fannst honum ekkert varið í þessi aukahljóð og sagði að það væri ekkert að hjartanu mínu. Hann ætti ekki von á því að við myndum hittast aftur á lífsleiðinni, nema ég myndi ekki passa mig og yrði of feit!

Fjármál... jájá, förum ekkert útí þau!

Að lokum vil ég þakka öllum sem nenntu að lesa þessa ritgerð. Um leið og ég óska öllum gleðilegs nýr árs vil ég minna alla á að ganga hægt inn um gleðinnar dyr.

2012 -nýtt ár með mörg ný tækifæri!

P.S.
Ég ætlaði að hafa fleiri myndir með, en netið er voðalega hægvirkt í dag en við komumst nýlega að því að einhver óprúttinn aðili í húsinu hefur hakkað sig inn á þráðlausa netið okkar og sökum þess hefur gagnamagnið hjá okkur farið uppúr öllu valdi og því allt voða hægt. Við erum búin að láta Vodafone vita af þessu og hertu þeir öryggið á netinu okkar ásamt breyttum stillingum og öðru lykilorði ;)

No comments:

Post a Comment