Tuesday, January 17, 2012

Að ná svitalykt úr fötum

Ég fór fyrir rúmri viku síðan í leit að bol sem ég gæti notað í Zumba. Ég á æfingaboli í skápnum mínum, en þeir mættu alveg passa aðeins betur svo hingað til hef ég bara verið í bómullarbolum af manninum mínum... mæli ekki með því!
Ég fór í Intersport og skoðaði heilmikið á útsölunni þar. Fann helling af fötum og skóm sem mig langaði í, en þarsem ég var einungis á höttunum eftir ódýrum bol þá lét ég ekki freistast. Eftir miklar pælingar og skoðandi hina og þessa verðmiða á bolunum ásamt því að bera þá saman, þarsem ég þekki ekki mikið til íþróttafatnaðar, fann ég á endanum voða krúttlegan fjólubláann bol. Ég mátaði hann og smellpassaði hann á mig. Upprunalegt verð á bolnum var 2.990 kr en búið var að lækka hann niður í 1.990 kr sem var enn betra. Ég furðaði mig þó á því að ég sá alveg eins boli á vegg rétt hjá sem voru ekki á lækkuðu verði, og einnig í fleiri litum en fjólubláum. Það voru samt fleiri bolir á slánni eins og sá sem ég var með sem voru líka með miða á sem sýndi lægra verð svo það gat ekki komið annað til greina en að þeir væru á tilboði -enda verðmiði á miðanum sem sýndi lægra verð.
Þegar við kassann kom átti að rukka mig um 2.990 kr., þegar ég spurði hvort hann ætti ekki að vera á 1.990 kr. skoðaði afgreiðsludaman verðmiðann og lagfærði villuna. Ég varð samt undrandi á því að hún bað mig um kennitöluna mína og stimplaði hana inn um leið og hún lagaði verðið á flíkinni. Á strimlinum sá ég svo kennitöluna mína og heimilisfangið sem ég hafði þegar ég bjó á Neskaupstað fyrir 8 árum síðan! Talandi um að uppfæra...

En nú hef ég komist að því hvers vegna þessir bolir eru svona ódýrir.
Ég skundaði s.s. í minn Zumbatíma, í þessum nýja fína bol. Tók vel á, svitnaði helling og skemmti mér konunglega líkt og áður. Kom svo heim og skellti æfingafötunum í þvottavélina og setti vélina af stað, eins og ég geri alltaf eftir æfingar. Svo þegar ég er að hengja fötin upp á snúrurnar finn ég að það er enn svitalykt af bolnum! Eftir fyrstu notkun! Ég ætlaði ekki að trúa þessu!
Ég leitaði á náðir kvennanna í prjónahópnum og bentu þær mér á að fara og kaupa efni sem heitir Rodalon og á víst að svínvirka á svona lagað! Einnig stakk ein uppá að láta bolinn liggja í köldu vatni með salti. Þarsem þetta var um kvöld og ég ekki að nenna út ákvað ég að prófa saltvatnið, og til að vera örugg (og vegna gleymsku) lá bolurinn í þessu í heila nótt. Hann fékk svo að fara aðra ferð í þvottavélinni, og var ekki hægt að finna neina svitalykt eftir þessa meðferð, algjör snilld!

Svo fór ég í Zumba í gærkvöldi, og svitnaði auðvitað líkt og áður... og er sagan með bolinn að endurtaka sig! Hann er semsagt as we "speak" liggjandi í saltvatni og ætlar að vera þar í nótt aftur... það verður spennandi að sjá hvað ég endist mörg skipti í viðbót af þessu... vinkona mín sem er með mér í Zumba (og reyndar líka í prjónahópnum) tjáði mér það að efnið sem er í bolnum er þekkt fyrir þetta hvimleiða vandamál, s.s. að svitalykt festist í því!

Bara mín heppni...

No comments:

Post a Comment