Ég er bara búin að vera í gömlu (nær ónotuðu) æfingaskónum mínum þegar ég hef verið í Zumbatímunum, og veit í raun ekkert hvernig skór þetta eru en grunar að þetta séu hlaupaskór. Þeir eru svolítið stamir og hef ég fengið verki í fæturnar vegna þess að ég hef ekki getað snúið mér sem skyldi í sumum lögunum í Zumbanu. Ég vandist þessu þó fljótt og kom mér á lagið með hvernig ég ætti frekar að fara að, sem hefur samt alltaf böggað mig þarna innst inni...
Núna fyrir stuttu eignaðist ég svo loksins almennilega skó sem ég get notað í tímunum. Þessir skór heita Reebok RealFlex Optima og frá því ég sá þá á netinu hef ég elskað þá, og ég hreinlega féll í stafi við að máta þá! Og núna loks eru þeir mínir (núna á að koma voða rómantísk tónlist til að undirstrika allt saman!)
Tótallí gordjöss!
(Ég reyndi að stækka myndina aðeins því ég fann svo litla mynd á gúgglinu, þess vegna er hún svona óskýr.. sorry about that!)
Fyrsti tíminn sem ég fór í, í nýju skónum, var Zumba Toning. Og vá, algjör snilld! Fór svo morguninn eftir í venjulegan Zumba tíma og enn meira vá! Miklu meiri snilld! Átti eiginlega bara í fullu fangi með að fljúga ekki í allar áttir þegar ég var að snúa mér! Þarf að venja mig á þetta allt saman alveg upp á nýtt! Love it! :D
Þessir skór kosta sitt... en hvort skiptir mann máli að vera með fæturna í lagi í góðum skóm, eða að vera með óþægindi/verki í fótunum í smá tíma eftir hvern tíma afþví að maður er ekki í nægilega góðum skóm? Take a pick...
(Reyndar fékk ég mína skó aðeins ódýrari vegna þess að þeir voru keyptir fyrir mig í Bandaríkjunum, svo það er um að gera að notfæra sér slíkt ef sá möguleiki er fyrir hendi!)
Svo núna er bara að sannfæra karlinn um gildi þess að eignast Zumba fatnað fyrir Zumba tímana! ;)
flottir skór
ReplyDeleteenn já það skiptir svo miklu máli að vera í góðum skóm þegar maður er að hoppaskoppast svona. Ég fór nýlega í göngugreiningu til að finna mér réttu hlaupaskóna, kom reyndar í ljós að þurfti innlegg enn VÁ þvílíkur munur að hlaupa núna, ég get bara hlunkast endalaust áfram :D