Friday, August 24, 2012

Haustið fer að nálgast...

því miður er staðreyndin sú að sumarið er eiginlega búið! Grunnskólarnir eru byrjaðir, allir keppast við að fara í berjamó og gera hinar ýmsu sultur... og ég er byrjuð í jólagjafahugleiðingum!

Eins og svo oft áður, langar mig að gleðja fólkið í kringum mig en án þess að eyða rosalegum fjármunum í það. Mig langar heldur ekki að fara útí búð og kaupa bara eitthvað, vegna þess að það var svo ódýrt!

Ég hef síðustu ár reynt að láta dótturina föndra jólagjafir handa öfunum, ömmunum og langömmunni. Í fyrra fór ég og keypti akrílmálningu í Föndru, og lét stelpuna mála krukkur undan barnamauki. Með þeim lét ég svo fylgja smávegis af grófu salti ásamt litlu sprittkerti og þá voru komnir þessir líka fínu kertastjakar sem ég held að hafi vakið góða lukku :) Því miður finn ég ekki mynd af þeim í tölvunni akkúrat núna, en ef ég rekst á þær þá skal ég pósta þeim hingað inn.

Munurinn á búðarkeyptum gjöfum og heimagerðum gjöfum er nefnilega heilmikill. Mér finnst reyndar alltaf gaman að fá gjafir, sama hvaðan þær koma, því sú staðreynd að einhverjum langar að gefa mér gjöf er eitthvað sem gleður mig alveg óendanlega :)
Sem dæmi um það má nefna súkkulaðiköku sem stelpur í 7. bekk gáfu mér í afmælisgjöf fyrsta árið mitt í grunnskólanum sem ég vinn í, kakan var alveg skelfileg en ég varð hálfklökk yfir þessari fallegu hugsun hjá þessum stelpuhóp ;) Og svo má jú nefna mynd sem einhver þeirra hafði rifið úr tímariti og gaf mér, en myndin var af gellu sem var mjög lík mér í útliti... myndina á ég enn á ísskápnum ;)

Mig langar rosalega að búa til sem flestar jólagjafir í ár, en á voðalega erfitt með að ákveða eitthvað og bara framkvæma það... en hér koma nokkrar hugmyndir sem kannski nýtast einhverjum:

  • Eitthvað prjónað/heklað, t.d. húfur, vettlingar, sjöl, fígúrur (bangsar og slíkt,) hálskragar o.s.fr.v....
  • Sauma innkaupapoka, sem ég hef heyrt útundan mér að séu að byrja að ryðja sér völl hér á landi hjá þeim sem vilja ekki vera endalaust að kaupa plastpoka í hverri búðarferð
  • Bókamerki, margir eru jú fyrir það að lesa og þá eru bókamerki alveg nauðsynleg :)
  • Kertastjakar úr krukkum, eins og ég var búin að nefna hér fyrir ofan
  • Mála málverk, ef maður gefur einhverja listræna hæfileika...
  • Heimagerðar sápur/baðolíur
  • Heimagerðir skartgripir. Besta vinkona mín tók sig til eitt árið og þæfði hálsmen og gaf mér, mér fannst það algjört æði :D
  • Smákökur í fallegri dollu... jafnvel málaðri af yngstu kynslóðinni
  • Uppskriftabók
 Hvað hefur þú verið að gefa í gjafir síðustu ár? Endilega kommentið ;)

No comments:

Post a Comment