Sunday, November 9, 2014

Heimagerðir Bounty-bitar

Í gær var ég að vinna í lærdómnum af miklum móð þegar "fíflið" hún systir mín sendir mér mynd frá sörubakstrinum sem hún var að stússast í... að sjálfsögðu fór hugurinn að reika yfir í eldhúsið en ég vissi að ég hafði ekki tíma til að fara að standa í jólabakstri þessa helgina, með verkefni svífandi yfir hausnum ásamt lesefni og ég veit ekki hvað!

En ég gafst upp!

Leitaði á náðir Pinterest...

... og fann uppskrift að Bounty-bitum sem innihélt hráefni sem ég átti til í skápunum...

... svo ég hófst handa!

Þetta tók mjög stuttan tíma, ótrúlegt en satt! Hentar vel ef von er á gestum en lítill tími til að hrista fram einhverjar dýrindis kræsingar sem taka fimm klukkustundir í undirbúningi! (Ókei... kannski "smá" ýkjur þarna...)

Heimagerðir Bounty-bitar
(Þið afsakið myndaleysið, ég fattaði ekki að taka myndir fyrr en í lokin... ég held samt að þið ráðið alveg við þetta myndalaust) ;)

Innihald:
113 gr. saltað smjör, mjúkt (ég notaði gamla góða íslenska smjerið)
170 gr flórsykur
226 gr kókosmjöl
1/2 tsk vanilla (ég notaði vanilludropa)
226 gr súkkulaði (ég notaði hjúpsúkkulaðidropana frá Nóa Siríus)

Aðferð:
Blandið saman smjörinu og flórsykrinum, svo þetta verði eins og seiðandi krem sem þið mynduð vilja smyrja ykkur uppúr.. ekki? Ókei þá, hrærið þetta bara vel saman og málið er dautt!
Bætið kókosmjölinu og vanilludropunum útí og blandið vel saman.
Því næst takið ca. lófafylli af blöndunni og gerið litla "drumba" eða því um líkt, jafnvel litlar kúlur ef þið viljið það frekar, og raðið á vaxpappír.
Til að útskýra betur hvað ég er að reyna að segja set ég inn þessa mynd sem ég fann á netinu:


Skutlið í ísskáp í 20 mínútur.

Þá er komið að því að bræða súkkulaðið, þessi dásamlega dásemd sem súkkulaði er!

Þið takið klessurnar ykkur aftur úr ísskápnum, takið svo eina í einu og veltið uppúr súkkulaðinu. Ég notaði tvo gaffla við verkið, ég held að það sé ekki voðalega gott að nota guðs gafflana svo ég mæli með venjulegum göfflum!
Notið gafflana til að velta bitunum uppúr súkkulaðinu þar til þeir eru alveg húðaðir, því næst er þeim raðað aftur á vaxpappírinn til að harðna. Ég mæli reyndar með því að gera þetta við einn mola í einu svo þetta endi ekki í einhverri vitleysu, svona þekkjandi sjálfa mig til dæmis!

Ég geri mér fyllilega grein fyrir að þetta lítur ekki út fyrir að vera girnilegt heimagert sælgæti... heldur meira eins og eitthvað annað heimagert... en þessi mynd er klassískt skólabókardæmi fyrir: "Never judge a book by its cover" ;)
Þegar búið er að súkkulaðihjúpa bitana er hægt að strá smá kókosmjöli ofaná, en þá er að passa að gera það áður en súkkulaðið harðnar. Ég gerði það ekki núna en get vel hugsað mér að gera það næst, ég elska nefnilega kókos!

Dóttir mín sá um að dæma bitana og gaf þeim "thumbs up!" ;)
Það er best að geyma bitana í ísskáp, en þeir eiga að höndla það að vera geymdir við stofuhita í nokkra daga... en hvernig er hægt að geyma svona í nokkra daga? Ég náði að halda þremur bitum eftir í gær en þeir voru borðaðir sem eftirréttur í hádeginu í dag!

Einnig myndi þetta sóma sér vel sem gjöf, svona fyrir þá sem vilja búa til eitthvað matarkyns og gefa í t.d. jólagjafir eða til að leggja í púkk fyrir Pollýönnuboð eða slíkt, möguleikarnir eru endalausir! ;)

Njótið!

Hilda

No comments:

Post a Comment