Tuesday, November 18, 2014

Draumar...

Við eigum það öll sameiginlegt að okkur dreymir. Þá er það sama hvort það er í vöku eða svefni.
Í tilefni þess að ég þurfti að fara og sækja skottuna mína í skólann vegna veikinda sitjum/liggjum við í sófanum hérna heima og horfum á mynd í sjónvarpinu.... ókei, ég er mögulega með tölvuna í fanginu að þykjast læra... í staðinn læt ég mig dreyma ;)

Bæ ðe vei... ég á afmæli eftir aðeins 6 daga... og svo eru jól í næsta mánuði... og ég verð víst þrítug á næsta ári... fullt af tilefnum til að gefa mér gjafir! hehehe ;)

Óskalistinn minn, gjörið svo vel!
Eyðibýlahópurinn hefur lokið starfi sínu við að skoða eyðibýli á Íslandi, allar bækurnar saman kosta 38.500 krónur í öskju inná eydibyli.is

Canon EOS 7D Mark II... kostar einungis 319.900 hjá Nýherja... reyndar langar mig bara í einhverja flotta og góða myndavél sem gefur mér betri möguleika í myndatökum, og gefur mér færi á að læra betur að taka myndir en undanfarið hef ég fundið hvað mér finnst það skemmtilegt (Instagram reikningurinn minn er ágætis vitni um það...) Ég birti bara mynd af akkúrat þessari vél því hún er svo sjúklega dýr og fensí að sjá ;)

Áhaldakassi á hjólum frá Wilton, fæst í Allt í köku fyrir 38.250 krónur án áhalda... ég myndi að sjálfsögðu vilja öll áhöldin að auki ;) En mig langar samt ekki í þetta fyrr en ég er búin með námið, þá get ég líka skellt mér á kökuskreytinganámskeið... sem er jú eitthvað sem mig langar líka í ;)

Ég er sjúúúúúúk í uglukertastjakana hjá Pier, reyndar langar mig í flest þarna á myndinni... ég fann ekki betri mynd á facebooksíðu Pier en það er í lagi því þetta er allt saman svo fallegt og ég myndi ekki slá hendinni á móti því! ;)

Ég held ég væri svo alveg til í þetta eldhús nánast bara frá a-ö... ljósakrónurnar, loftið, munstrið á skápunum, höldurnar... já, mig langar í það frá toppi til táar! ;)

Ég væri alveg til í svona tösku, að vísu gæti ég ekki réttlætt kaup á svona sjálf en myndi ekki slá hendinni á móti slíkri gjöf ;) 

Garngöndull... þessi mynd er frá Freistingasjoppunni en ég fann ekki myndina af akkúrat þeirri týpu sem mig langar í. Þetta er notað til að halda garndokkunni á sínum stað, ferlega sniðug græja sem ég gæti vel notað þegar ég er að prjóna og slást við köttinn um garnið! ;)


Parka... svo dásamleg... vantar einmitt eitthvað til að nota þegar það er of kalt fyrir jakkann minn en of heitt fyrir ofurúlpuna mína... sýnist þessi vera alveg tilvalin í hlutverkið! Fæst hjá asos.com... nánar tiltekið hér

Þessar  elskur fást í H&M... dásamlegir... kosta 249 danskar krónur, ca. 5187 íslenskar krónur

"Því mig dreyyyyheyyymiiiir..."

Þetta er að sjálfsögðu bara brotabrot af því sem mig langar að eignast, ef ég myndi fara að telja það allt upp hér myndi ég aldrei ljúka við listann!

En jæja, þá er að halda áfram lærdómnum... þessi verkefni leysa sig víst ekki sjálf, sama hvað ég bið þau um það!

Þar til næst!
Hilda

No comments:

Post a Comment