Jólaprófin hefjast eftir þrjá daga, önnin hófst bara í síðustu viku!
Fáránlegt, gjörsamlega fáránlegt!
Á þessum tímamótum þakka ég fyrir Monicu-genið, skipulagspervertinn sem leynist innra með mér.
Nær allar jólagjafir eru t.d. komnar í hús eða væntanlegar á næstu dögum, sömu sögu er að segja um skógjafirnar frá jólasveininum (hann fær frábæra aðstoð frá tveimur jólasveinum sem eru staddir í Glasgow þessa helgina og eru með augun opin fyrir einhverju skemmtilegu sem hentar í uppátækið) ;)
Fyrsta lokaprófið mitt þetta misserið er einmitt eftir þrjá daga en það vill svo skemmtilega til að það verður gagnapróf, sem þýðir að það má taka með sér öll hjálpargögn (nema tölvur og síma að sjálfsögðu, þetta er jú próf sem maður á að leysa einn!) Mappan mín er einmitt tilbúin í djobbið, allt samviskusamlega merkt og skráð niður á yfirlitsblað sem ég mun hafa til hliðsjónar í prófinu... Monica yrði svo stolt ef hún sæi þetta! ;)
En talandi um skipulag... í lestrarpásunum (ég er sko í einni svoleiðis núna!) er ég aðeins búin að hugsa um hvað ég ætla að gera þegar prófum líkur... að vísu er smá jólabröns efstur á lista en að því loknu er planið að klára að skreyta allt hátt og lágt með dýrindis jólatónum á fóninum. Ég er einnig búin að ákveða að skella mér á jólatónleika Harmony sem verða í Lindakirkju 16. desember klukkan 20:00, ég skellti mér í fyrra og bauð tengdamömmu með og við nutum þess í botn. Þetta er skylda, þessar dívur syngja dásamlega og þetta er alveg kærkomið eftir prófageðveiki eða sem hvíld frá amstri dagsins. Skylda sagði ég!
![]() |
Dívurnar sem skipa Harmony |
Svo er planið að sjálfsögðu að njóta aðventunnar með litlu fjölskyldunni minni með öllu sem því tilheyrir... skreyta piparkökuhús, pakka inn jólagjöfum og koma þeim til skila, föndra eitthvað jóló, horfa á jólamyndir og syngja jólalög og margt fleira.
Þrátt fyrir þessa ritgerð um allt það sem ég læt mig dreyma um í próflestrinum þá var þetta samt ekki það sem ég ætlaði bara að tjá mig um.
Í gær var semsagt Black Friday, sem þýðir: "Brjálaðir afslættir og kreisí fólk að versla og hrúgur af fólki allstaðar í úgglöndum!" Nokkrar verslanir hér á landi ákváðu einnig að taka þátt í þessari erlendu hefð og buðu uppá allskyns afslætti af allskonar vörum. Sökum þess að ég er námsmær ákvað ég að fara ekki út fyrir hússins dyr nema til þess að skunda í aukatíma í skólanum og fengu verslanir því ekki að vera þess heiðurs aðnjótandi að fá mig til sín! Aumingja þær!
En ég verslaði samt... á netinu... ;)
Netsíðan www.beautybay.com hrundi á versta tíma, nefnilega á Black Friday. Facebook-síðan þeirra fékk tonn af skilaboðum frá reiðum viðskiptavinum sem voru allskostar ekki sáttir og vildu sumir fá bætur fyrir og ég veit ekki hvað. Til að bæta upp fyrir þetta ákváðu þeir að framlengja afsláttunum sínum í einn dag í viðbót, og ákvað ég að slá til og nýta tækifærið. Ég hef einu sinni pantað frá þeim áður, fyrir 2 árum síðan, og skráði mig þá á póstlistann þeirra svo ég fæ reglulega pósta frá þeim þegar tilboð eru í gangi og slíkt, sem er reyndar mjög oft.
Ég átti svo afmæli á mánudaginn síðastliðinn og hafði af því tilefni fengið tölvupóst frá þeim og vildu þau gefa mér 10% afmælisafslátt af næstu pöntun minni hjá þeim, en hann gilti einungis í viku (pínu frat en...) Afslátturinn gilti svo einnig á Black Friday svo ég fékk ekki einungis afslátt dagsins heldur einnig afmælisafsláttinn, ekki slæmt! ;)
Ég er ekki mikil snyrtivörufrík (no shit!) en ég ákvað að spreða í eftirfarandi hluti til að prófa:
Æjjj... ég verð að halda áfram að lesa og glósa... þetta gerir sig ekki sjálft!
Heyrumst síðar!
No comments:
Post a Comment