Tuesday, October 21, 2014

Afmæli

Í síðustu viku átti einkadóttirin afmæli, hún varð (loksins) 7 ára. Þegar við vorum að ræða væntanlega afmælisveislu langaði hana til þess að hafa Frozen þema, sem ég held að sé heitasta afmælisþemað í dag! ;)
Við ákváðum að bjóða öllum stelpunum í bekknum hennar og halda veisluna hérna heima til að halda kostnaði niðri, enda eru stelpurnar 17 í heildina.
Við buðum uppá Wilsons pítsur, enda vildi svo skemmtilega til að þeir voru með tilboð á pítsum í síðustu viku -1000 kr stór pítsa ef sótt!
Ég skellti svo einnig í eitt stykki Ólafs-köku, en fyrir þá sem ekki þekkja til myndarinnar Frozen er Ólafur snjókarl sem að mínu mati heldur myndinni uppi með einstaklega skemmtilegum húmor.

Þessi elska er eldri en maðurinn minn, en stendur ávallt sína plikt þegar kemur að bakstri ;)
Ég baka kökur nánast bara einu sinni á ári, eða þegar dóttirin á afmæli, svo tertuskreytingahæfileikar mínir ná ekki langt en ég tel mig standa mig bara ágætlega í þeirri deildinni... svo er ekkert verra að undirbúa sig vel og leita hugmynda á netinu, t.d. með því að Google-a eða skoða Pinterest ;)

Eins og venja hefur orðið á, voru haldnar tvær afmælisveislur. Ein fyrir fjölskyldu og vini og önnur fyrir bekkjarsysturnar.
Í fjölskylduafmælinu ákváðum við að brydda uppá nýjung í okkar veisluhaldi og bjóða öllum til okkar seinnipartinn í miðri viku og bjóða uppá gúllassúpu. Að sjálfsögðu skellti ég í kökur í eftirrétt, það verður jú að vera hægt að skutla kertunum á eitthvað! ;)

Rolo-konfektterta, einhverra hluta vegna ákvað karamellan að leka út um allt -ég hélt hún væri orðin nógu köld til að setja yfir heila klabbið en svona lagað gerir tertur bara betri fyrir vikið! ;)
Þessi terta er annars ómissandi í veislur á mínu heimili, að mínu mati ;)
Afmælistertan í fjölskylduveislunni. Upphaflega ætlaði ég að gera köku sem væri eins og naglalakksglas en það tókst ekki alveg... svo ég ákvað að þetta væri toppurinn á naglalakksglasi... það var enginn sem sá það áður en ég útskýrði, en tertan smakkaðist vel engu að síður og dóttirin var ánægð sem er jú fyrir öllu ;)
"Krakka"borðið í fjölskylduafmælinu ;) Diskarnir, glösin og gafflarnir eru úr Partýbúðinni en voru keypt fyrir nokkrum árum síðan og eru með bestu kaupum sem við höfum gert! Tökum þau fram fyrir veislur og skellum í þvottavélina eftir notkun, að sjálfsögðu hefur eitthvað skemmst en þá hefur það bara farið í ruslið.. maður grætur það ekkert enda er þetta ekki svo dýrt þegar á botninn er hvolft ;) Servíetturnar eru svo úr Ikea, ég keypti þær fyrir löngu síðan en gleymdi alltaf að taka þær fram. Dúkurinn og plastdúkurinn sem er yfir eru báðir úr Rúmfatalagernum.
Ég biðst afsökunar á myndgæðunum en ég var lítið að velta mér uppúr því að taka frábærlega góðar myndir á þessari stundu enda gestirnir byrjaðir að týnast til okkar ;)
Einnig virðist ég ekki hafa tekið mynd af súpunni sem við buðum uppá en það þarf ekki alltaf að taka myndir af mat, hann smakkast alveg jafn vel samt ;)
Við enduðum semsagt á að gera gúllassúpuna hjá eldhusperlur.com, en til að nálgast uppskriftina smellið hér ;)

Fyrir seinni veisluna skelltum við upp aðeins meira skrauti en mér áskotnaðist til dæmis nokkrir renningar af skrautrúllu sem höfðu verið notaðir í fermingarveislu sem við fórum í fyrir stuttu (já ég veit alveg að það er október, við vorum samt í fermingarveislu!) en litirnir og glimmerið í renningunum voru svo algjörlega í stíl við Frozen!
Ég fékk svo lánaðan snjókorna-punch hjá tengdamömmu og bjó til nokkur snjókorn úr hvítum og bláum pappír og raðaði á borðin sem kom voða skemmtilega út :)

Hér sést í einn renninginn, glimmerið úr þeim lagði íbúðina undir sig en það er bara gaman að því ;)
Stóra borðið áður en allt skall á. Diskarnir, glösin og servíetturnar voru keypt í Bónus og gafflarnir eru úr Partýbúðinni, eru eins og þessir sem voru notaðir í fjölskylduafmælinu. Rörin voru svo keypt í Allt í köku en ég mæli ekki með þeim! Þau linuðust upp fljótlega eftir að hellt hafði verið í glösin og við vorum endalaust að láta stelpurnar hafa ný rör. Ég hef áður keypt svipuð rör í Tiger sem eru muuuun betri, en þau voru ekki til þegar ég fór þangað í síðustu viku og því keypti ég þessi þegar ég fór í Allt í köku að athuga matarlitina hjá þeim.
Svona var svo sófaborðið en þegar á hólminn kom mættu ekki allar stelpurnar sem var boðið (sumir höfðu samband annaðhvort strax um kvöldið eða daginn eftir til að biðjast afsökunar en þá hafði afmælið gleymst) svo við náðum að koma öllum fyrir við stóra borðið ;)
Afmæliskakan vakti mikla lukku, en þetta átti að vera Ólafur að slaka á í vatni og með sólhlíf (enda lætur hann sig dreyma um sólina!) og svo lét ég nokkra snjóbolta "fljóta" í kringum hann ;) Ólafur er búinn til úr sykurpúðum, saltstöngum og augum sem voru keypt í Allt í köku, borðinn sem ég notaði til að binda og skreyta kökuna með er úr Tiger ;) Snjóboltarnir eru litlir sykurpúðar sem ég keypti í Kosti, ýkt litlir og krúttlegir! ;)
Þessi afþreying vakti hvað mesta lukku í veislunni, svo ég tali nú ekki um lætin en þau eru oft tákn um góða skemmtun ;) Ég fékk niðursuðudósir hjá góðu fólki í gefnum Gefins-síðu á Facebook þar sem ég uppgötvaði að við erum ekki nógu dugleg að notast við dósamat, þó hann sé alltaf til uppi í skáp ;)
Ég fann svo myndir af Ólaf í gegnum Pinterest og prentaði út og klippti til og límdi á dósirnar sem eru 10 talsins, dóttirin átti svo lítinn bolta sem notast var við til að kasta í dósirnar og var keppst við að reyna að ná sem flestum dósum niður í einu skoti ;)
Og já, þetta er afmælisbarnið sem er með á myndinni -hún heimtaði að fá að vera með ;)
"Festu nefið á Ólaf!" (e. Pin the nose on Olaf). Hugmyndin og myndirnar fengnar af Pinterest. Ég klippti Ólaf út og límdi á blátt blað, sem var það sem var næst mér, og setti kennaratyggjó á nefin. Svo var bundið fyrir augun á stelpunum sem reyndu að staðsetja nefin á réttan stað, skiljanlega var dósaleikurinn vinsælli en mér sýndist stelpurnar skemmta sér vel yfir þessu líka þegar þær vildu smá pásu frá látunum ;)
Kveðjugjöfin til gestanna þegar haldið var heim á leið. Mér finnst þessi hugmynd svo skemmtileg og auðveld í framkvæmd að ég ákvað að búa til smá leiðbeiningar svo aðrir geti gert svipað sé áhugi fyrir því :)
Sykurpúðapinnar (hugmynd fengin af Pinterest)
Það sem þarf:

Sykurpúðar (ég var með tvo poka)
Grillpinnar
Sellófan (ég notaði rúllu sem ég keypti fyrir nokkrum árum, en ég hafði þá talið þetta vera gjafapappír en hef ekkert notað þetta svo þetta var kjörið tækifæri til að losna við eitthvað af rúllunni -það fór nú samt ekki mikið í þetta)
Litlar myndir (ég fann mínar á Pinterest og prentaði út)
Heftari (ekki gleyma að hafa hefti í honum)
Límband
Pakkaband -eða annað til að binda með (ég notaði garn)

Ég ákvað að hafa fjóra sykurpúða á hverjum pinna, fimm væru samt alveg í lagi en ég held að það sé bara smekksatriði. Við röðum sykurpúðunum upp á pinnana, klippum til sellófanið og pökkum því yfir sykurpúðana og festum með límbandi. Hafið opið í báða enda á sellófaninu, passið að láta sellófanið fara vel yfir báða enda því þið þurfið að notast við þá á eftir ;)
Takið bandið og bindið fyrir endann sem er yfir pinnanum, og dáist nú að því hvað þið eruð búin að búa til flotta túrtappa! Ég fór í kast þegar ég fattaði það! ;)
En sú dásemdar túrtappahrúga! ;)
Takið nú túrt... ég meina, pinnana og heftið litlu myndirnar við hinn endann, það er nóg að hefta bara einu sinni en passið að hefta ekki í sykurpúðann! ;)
Við buðum stelpunum einnig uppá "þiðinn Ólaf" að drekka, en það reyndist vera Sprite með bláum matarlit og klökum ;) Þetta vakti mikla lukku enda var einstaklega gaman að kalla yfir hópinn: "Hver vill fá meiri Ólaf að drekka?!?" ;)

Einng vorum við með bláa pom-poms í loftinu sem virðast ekki hafa náð að rata á neina mynd, en þeir voru keyptir í Rúmfatalagernum ;)

Dóttirin var alsæl með veislurnar sínar og skemmti sér konunglega. Ég hafði einstaklega gaman að undirbúningi, skipulagningu og framkvæmd og maðurinn minn naut þess að þurfa að gera sem minnst í þessu öllu saman! ;)

Það var samt óskaplega gott að geta lagst upp í sófa og slakað á eftir allt saman, ég ætla ekki að ljúga neinu öðru að ykkur! ;)

Þartil næst!
Hilda

2 comments:

  1. Vó það vantar ekki hugmyndaflugið hjá þér kona. Þetta er rosalega flott... get ég ekki bara ráðið þig í þetta fyrir næsta afmæli hjá mér!! hehe ;)

    ReplyDelete
    Replies
    1. hehehehehehehe ekki málið! Borgar bara flugið austur og þá er ég sátt! ;)

      Delete