Tuesday, September 30, 2014

Ebaykaup!

Það er búið að vera svo mikið að gera hjá mér að ég hef lítið daðrað við Ebay, en við tókum smá "cha cha cha" if you catch my drift! ;)
Ohhh hvað þetta var samt sjúúúúúúúklega lélegur brandari! Biðst forláts!

Þessi elska kom í síðustu viku, nú eiga fjarstýringarnar okkar sinn fasta stað! Fékk þennan fyrir 4.21 dollara sem eru þá 512 krónur íslenskar
Þessar elskur eru reyndar ekki enn komnar, en eru væntanlegar á næstu dögum ;) Borgaði 0.23 dollara fyrir eða alveg heilar 28 krónur... veskinu blæðir út hægt og rólega með þessu áframhaldi...
Svo er það glaðningurinn sem kom í póstkassann í dag, húsmóðirin er búin að vera pínu spennt en það var samt ekki von á þessum pakka fyrr en í fyrsta lagi í næstu viku svo þetta kom skemmtilega á óvart... bætir aðeins upp þetta leiðinda veður þessa dagana ;)



Ég fékk stykkið á 1.45 dollara eða 175 krónur... eða s.s. 525 krónur í heildina fyrir alla þrjá saman. Ég get varla beðið eftir að fara og versla, það er samt lykilatriði að muna eftir að taka þá með! ;)
Þessa dagana er nóg að gera, verkefnavinna í skólanum og nóg að lesa. Dóttirin verður svo 7 ára eftir rúmar tvær vikur og er skipulagning að hefjast í sambandi við það... skrapp t.d. rétt aðeins í Smáralind þegar ég átti smá aukatíma í dag til að fá hugmyndir fyrir þemað sem hana langar að hafa. Hún var búin að tala um þetta þema áður en ég endaði á að þora ekki að versla af Ebay í tengslum við það eins og ég hafði planað, ég var aðeins of hrædd um að hún myndi skipta um skoðun sem er ekki óalgengt þegar maður er 6 ára... að verða 7 ;)
En verið óhrædd, ég er byrjuð í jólagjöfunum! Nokkrar búnar og hugmyndavinna farin á fullt í sambandi við það! ;)

Þartil næst!
Hilda

No comments:

Post a Comment