Navia fyrirtækið var stofnað 7. janúar árið 2004 af Óla Kristian í Torkilsheyggi í Færeyjum. Fyrirtækið byrjaði sem skólaverkefni, en þarsem Óli hafði svo mikla trú á því lét hann það verða að veruleika. Í dag er Navia garnið selt um allan heim (segið svo að skólaverkefni séu til einskis!)
Aðalskrifstofa Navia er staðsett í Toftir í Færeyjum, en einnig er verslun í Tórshöfn.
Navia garnið fæst í þremur gerðum: Uno, Duo og Trio.
Uppsetning garnsins er: færeysk ull, shetlandsull og áströlsk lambaull.
Hver dokka er 50 grömm, 350 metrar.
Prjónastærð fyrir Uno er 2.5 og prjónfestan er 31 lykkja = 10 cm.
Uppsetning garnsins er: færeysk ull, shetlandsull og áströlsk lambaull.
Hver dokka er 50 grömm, 180 metrar.
Prjónastærð fyrir Duo er 3.5 og prjónfestan er 22 lykkjur = 10 cm.
Uppsetning garnsins er: færeysk ull, shetlandsull og áströlsk lambaull.
Hver dokka er 50 grömm, 120 metrar.
Prjónastærð fyrir Trio er 4.5 og prjónfestan er 19 lykkjur = 10 cm.
Frá því að fyrirtækið var stofnað, hefur Navia gefið út 16 mismunandi blöð með viðamiklu úrvali af uppskriftum fyrir alla. Uppskriftirnar eru hannaðar af hugmyndaríkum konum sem eru vanar að prjóna og búa til sínar eigin flíkur, en eru ekki starfandi hönnuðir. Með því móti fást uppskriftir af öllu tagi sem allar eiga þó uppruna sinn að rekja í hinum hefðbundna færeyska prjónaskap, þótt sumar þeirra séu mjög nýtískulegar.
Navia framleiðir einnig allskonar "kit" sem innihalda eina valda uppskrift ásamt garni sem nægir í uppskriftina. Má þar nefna t.d. trefla, sokka, vettlinga, eyrnabönd o.s.fr.v.
Sápan inniheldur lanoline sem gerir flíkina mýkri og meira vatnsfráhrindandi. Hún er seld í flöskum og er hægt að velja á milli þess að fá sápu fyrir vélarþvott og handþvott.
Innflutningsaðili Navia á Íslandi er Tinna heildverslun (www.tinna.is)
Heimildir: http://www.navia.fo
No comments:
Post a Comment