Október er genginn í garð!
Dóttir mín verður 5 ára í þessum mánuði, og það sem hún er búin að bíða lengi eftir því!
Októbermánuður er einnig mánuðurinn sem er tileinkaður brjóstakrabbameini.
Í byrjun mánaðar keypti ég bleiku slaufuna, en í ár er hún hönnuð af SIGN (www.sign.is)
Í gær, föstudag, var svo "Bleikur föstudagur" víðsvegar um landið, og að sjálfsögðu tekur maður þátt í svoleiðis! ;)
Ég vona að myndirnar birtist, en ég tók þær á símann minn og setti inná Instagram-síðuna mína
Allar líkur benda svo til þess að afmæli dótturinnar muni bera einhvern bleikan keim með sér sem er bara skemmtilegt ;) Hún er búin að biðja um að fá Sollu stirðu afmælisköku og bleikan Sollu stirðu gítar í afmælisgjöf (en hún er búin að tala um hann síðan í júní, er voða fegin að hann var enn til þegar faðirinn fór keypti hann fyrir mánuði síðan þegar við sáum að hún væri ekki að fara að hætta tala um hann!) ;)
Og síðan svona smá til gamans:
Bleiki liturinn á blómum þýðir:
Bleikar rósir - hamingja, þokki, blíða.
Ljósbleikar rósir - aðdáun, samúð.
Bleikar nellikur - þakklæti.
Bleikir túlípanar - umhyggja.
Eigið bleikan mánuð!
No comments:
Post a Comment