Sunday, June 17, 2012

"Það er kósýkvöld í kvöld..."

Mér, eins og eflaust mörgum öðrum, finnst mjög notalegt að hafa kósýkvöld af og til ;)

Einnig finnst mér, eins og eflaust mörgum öðrum, gaman að hafa fallegt í kringum mig.

Dóttir mín missti sig um daginn í að týna köngla, og endaði hún með fullt fangið af þeim alveg hæstánægð ;) Að sjálfsögðu vildi ég ekki láta alla þessa vinnu hennar fyrir bý, svo ég setti könglana í skál og setti á borðstofuborðið í stofunni hjá okkur. Og vitið þið bara hvað? Þetta er bara hið fínasta punt... á meðan kötturinn lætur þetta í friði! ;)


Í dag, á sjálfan þjóðhátíðardaginn, fórum við litla fjölskyldan á bæjarrölt rétt eins og margir aðrir ;)
Eftir að hafa keypt risastóra prinsessublöðru handa dótturinni, horft á Brúðubílinn í Hallargarðinum og labbað um í mannmergðinni í miðbænum ákváðum við að nú væri komið gott og héldum til baka í bílinn.
Í stað þess að fara strax heim á leið var ákveðið að keyra svolítið um höfuðborgarsvæðið, og keyrðum við að Hvaleyrarvatni þarsem við stoppuðum bílinn og tókum örstuttan göngutúr.
Í bílnum aftur, á heimleiðinni, verður mér á að segja upphátt að það lægi við að ég myndi vilja stoppa og týna nokkrar lúpínur til að setja í blómavasa heima. (Systir hennar tengdamömmu gerði það áður en hele familien kom til þeirra í afmæliskaffi um daginn, og mér fannst það koma svo flott út!)
Áður en ég vissi af, var maðurinn minn búinn að stoppa bílinn útí vegkanti og beinlínis rak mig út til að týna lúpínur!
Ég hreinlega get ekki gert mér í hugarlund hvað fólkið í bílunum sem keyrðu framhjá hefur eiginlega haldið, en að mínu mati var þetta alveg þess virði því ég fékk þetta fína punt í stofuna mína ;)

(Sama hvað ég reyni, þá næ ég ekki að snúa myndinni!)

Maður þarf ekki að fara í verslanir og eyða heilu peningahrúgunum í smá punt fyrir heimilið... puntið getur leynst í vegkantinum eða í dúlleríi barnanna ;)
Endilega komið með fleiri svona hugmyndir í komment hér fyrir neðan ;)

No comments:

Post a Comment