Monday, June 11, 2012

Gleðiborðarnir mínir :)

Síðan ég kynntist henni tengdamóður minni fyrir 7 árum síðan, hefur áhuginn fyrir skrautskriftarpennanum og föndrinu blossað upp.
Í grunnskóla lærðum við örlítið um skrautskrift og að nota skrautskriftarpenna, en svo var þeirri þekkingu bara hent til hliðar um leið og þeirri kennslu lauk.

Ég byrjaði að reyna að herma eftir tengdó, og hvatti hún mig óendanlega mikið áfram og hrósaði mér óspart (og gerir jú enn!)
Ég ákvað svo að trítla með henni í Kvöldskóla Kópavogs, en þar kennir hún skrautskrift á veturna. Ég fór þarafleiðandi að krota meira og meira með skrautskriftarpennanum, og skrautskrifa ég nú í hvert kort sem ég geri, en þó er misjafnt hvort ég noti skrautskriftarpennann eða bara venjulegan penna ;)

Af og til hef ég skrifað á svona "fegurðardrottningarborða" við hin ýmsu tækifæri. Má þar nefna gæsun, bekkjarmót, ættarmót og stórafmæli. Hafa þessir borðar vakið mörg bros og hef ég fengið mörg hrós fyrir, og nú er svo komið að ég ákvað í gær að prófa að opna "læk" síðu á Facebook fyrir Gleðiborðana mína ;)

Gleðiborðarnir mínir

Mér finnst rosalega gaman að gleðja aðra, og þarsem borðarnir gleðja fólk finnst mér gaman að gera þá. Því eru þeir sannkallaðir gleðiborðar, en það var maðurinn minn sem fann upp á nafninu... þessi elska :)

Endilega gerið "læk" við síðuna mína og dreifið boðskapnum, mér þætti alveg óendanlega mikið vænt um það :)

No comments:

Post a Comment