Plön sumarsins:
- Slaka á og njóta lífsins
- Zumba eins og mögulegt er!
- Tana! ;)
- Gróðursetja á litla landinu og fiffa til þar, líkt og í fyrra
- Prjóna eins og nennan leyfir (hún er ekki búin að vera mikil núna undanfarið samt!)
- Skipta um parket í stofunni/alrýminu (það eyðilagðist rétt fyrir jól, en tryggingarnar borga sem betur fer!)
- Kallinn er svo að útskrifast úr Menntastoðum hjá Mími núna í lok júní, er svo endalaust stolt af honum fyrir að stíga loksins þetta stóra skref og fara í skóla! Svo byrjar hann í háskólanum í haust ;)
Mér hefur stundum fundist í vetur ég varla sjá manninn minn sökum annríkis, en nú verður bót á því ;)
Elskurnar mínar, njótið sólarinnar en ekki gleyma sólarvörninni! ;)
No comments:
Post a Comment