"... eina sem aldrei nóg er af!"
Já, hann Palli hefur aldeilis rétt fyrir sér!
Núna um helgina eru tvær dömur sem ég þekki að fara að ganga í það heilaga með sínum heittelskuðu (þær eru semsagt ekki að fara að giftast hvor annarri!)
Við skötuhjú vorum í tilefni þess að ræða giftingar yfirhöfuð, og verður mínum manni á að velta fyrir sér eitt stundarkorn hvort pör séu að giftast fyrir gjafirnar... rétt eins og oft er talað um að fermingarbörn séu að fermast fyrir gjafir.
En staðreyndin er nú sú að svo er ekki, eða það ætla ég nú rétt að vona!
Afhverju að taka svona stóra skuldbindingu fyrir nokkra pakka... sama þótt það sé Kitchenaid hrærivél, Saladmaster pottar eða gjafabréf?
Afhverju að hafa fyrir því að standa í undirbúningi í ár eða e-ð álíka fyrir nokkrar gjafir?
Þegar að því kemur að ég geng í hið heilaga, þá verður það fyrir ástina! "Allt fyrir ástina..."
Svo hef ég einnig heyrt útundan mér að aðrir fjölskyldumeðlimir finnist þeir þurfa að skipta sér af skipulagningu hins stóra dags, algjörlega óumbeðnir. Setjandi út á hitt og þetta, og segja hreint og beint út að þeim finnist dúkarnir ljótir eða gesturinn sem á sitja á móti sér vera með of ljótt nef til að vera nálægt sér og að hann skuli vera færður hið snarasta! Hvaða frekja er það??
Afhverju getur fólk ekki virt þá staðreynd að þetta er ekki þeirra dagur?!?
Ef mér finnst eitthvað ekki vera eins og ég sjálf myndi vilja hafa það, þá hreinlega held ég kjafti og hananú! Þetta kemur mér ekkert við ef brúðhjónin vilja hafa hlutina svona! Alveg óþarfi að vera að bæta pirringi ofaní stressið hjá parinu sem er að reyna að undirbúa ógleymanlegan dag í lífi sínu, dag sem verður (væntanlega) ekki endurtekinn!
Í stað þess að vera þessi pirrandi einstaklingur, skaltu hafa á þér litla glósubók og blýant.
Ef þér finnst þú þurfa að setja útá eitthvað, skaltu skrifa það niður í stað þess að segja það upphátt.
Þegar þú ætlar svo að gifta þig, skaltu taka upp þessa litlu bók og lesa hana... er þetta eitthvað sem þú myndir vilja heyra í undirbúningnum þínum? Nei, ég hélt ekki ;)
"Ég segi út með hatrið, inn með ástina..."
Brosum og njótum dagsins :)
er fólk í alvöru að gifta sig fyrir gjafirnar... jahérna.... :-O
ReplyDeleteenn ég er sammála þessu með gagnrýnina, á svona stundu er þetta bara eitthvað sem maður á að halda fyrir sig.