Friday, January 27, 2012

Algengt vandamál eða??

Ég hef átt við eitt vandamál að stríða í gegnum mína lífsstíð.

Að standa með sjálfri mér, muuun erfiðara að framkvæma það heldur en að segja það!

Þó hef ég smátt og smátt verið að taka mín babysteps í rétta átt, og til dæmis hef ég lært að nota orðið "nei."
Nei, ég vil ekki setjast undir stýri á bíl eftir að ég hef neytt áfengis!
Nei, ég vil ekki hirða þennan Ipod sem liggur þarna á glámbekk -ég vil koma honum til skila!
Nei, ég vil ekki borða nammi í sífellu -ég er að reyna að bæta matarræðið mitt!

Eitt sinn gat ég ekki einu sinni opnað munninn til að reyna að segja svona setningar, en ég tók mig á. (Reyndar er alveg skelfilegt að reyna að standast nammifreistingarnar!)

Ég fór að vinna markvisst í sjálfri mér og fór að tala hærra en ég var vön að gera, áður hvíslaði ég því ég var svo hrædd um að segja eitthvað sem öðrum mislíkaði.
Það tók verulega langan tíma fyrir mig að geta sagt setningar sem hefjast á orðunum: "Mér finnst..."

Feimni? Já, stór partur!
Meðvirkni? Alveg böns!
Hræðsla? Preach it sistah!

Ég get ekki sagt að ég sé komin á áfangastað í þessum málum, en ég tel mig vera komna fjandi langt!

Ég fylgist með fólki í kringum mig tækla hið daglega líf. Hvernig þeim gengur að standa með sjálfum sér. Sumum gengur frábærlega, á meðan öðrum gengur bölvanlega.

Hvernig kemur þú fram við aðila sem gengur illa að standa með sjálfum sér? Veðurðu yfir viðkomandi á skítugum skónum? Hlustarðu nokkurntíma á hvað hann/hún hefur að segja? Veistu nokkuð hvernig rödd manneskjunnar hljómar?

Líttu í eigin barm. Hugsaðu, og virkilega hugsaðu, um það hvernig þér gengur að standa með sjálfum/sjálfri þér.

Líttu í spegil. Hvað sérðu?
Áður fyrr fannst mér ég horfa á ekkert. Í dag sé ég manneskju með eigin skoðanir sem hún er óhrædd við að viðra. Ég sé manneskju með rödd, sína eigin rödd.

Ætli þetta vandamál sé mjög algengt í dag?

En nú verð ég bara að enda þetta á þessu vídjói, flaug í hausinn á mér rétt í þessu:
http://youtu.be/XLUobpe5YJY

Hafið það gott!

No comments:

Post a Comment