Tuesday, September 23, 2014

Þú veist þú átt kött þegar...

Þú veist þú átt kött þegar...


...þú finnur kattarhár í maskaranum þínum og einhvernveginn kemur það þér ekkert á óvart!

...sófinn þinn/sófasettið þitt er þakið hárum en þú ert búin/-nn að gefast upp og sest bara og kemur þér vel fyrir

...það telst eðlilegt fyrir þig að koma skyndilega með "spreybrúsahljóð" í miðju samtali og halda samtalinu svo áfram líkt og ekkert hafi í skorist

...börn eiga það til að koma uppað gluggunum á íbúðinni þinni bara til að skoða kisu ;)

...hundar fara skyndilega að gelta á gluggana þína því kötturinn er þar og er að stríða þeim, því þeir verða skammaðir en ekki hann ;)

...þú venur þig ávallt á að henda/fela alla litlu spottana sem þú klippir af prjóna-/hekl-/saumaverkefninu þínu strax... annars geturðu átt á hættu að þurfa að ná þeim úr kettinum (annaðhvort að framan eða aftan!)

...þú opnar Facebook og kattarmyndir sjást iðulega efst á veggnum þínum, því þú ert í kattargrúppu sem samanstendur af fjölda fólks sem er duglegt að deila myndum af krúttunum sínum... og þér finnst það ÆÐI! ;)

...stundum áttu það til að byrja á því að þefa um allt heimilið þegar þú kemur heim ef ske kynni að loðni fjölskyldumeðlimurinn hafi ákveðið að mótmæla breytingunum sem þú varst að gera á heimilinu með því að pissa einhversstaðar -helst á stað sem er vont að komast að eða jafnvel í þvottabalann þinn sem er fullur af hreinum þvotti!

...meirihluti myndanna á Instagram reikningnum þínum eru af kettinum þínum

...þú hittir fólk á förnum vegi sem byrjar á því að spyrja hvernig kötturinn þinn hafi það ;)

...þú passar þig alltaf á því að kaupa pappírspoka í Ikea, þó þú sért bara að kaupa örfáa hluti sem passa í glæru pokana, því kötturinn þinn ELSKAR þá!

...þú ert beðin/-nn um að passa ungt barn í smástund og þó það sé tilhlökkun í þér fyrir því finnurðu að þú ert í raun spenntari fyrir því að sjá hvernig kötturinn bregst við svona litlu barni!

...það telst eðlilegt fyrir þig að vakna ólöglega snemma morguns við að það er hoppað á magann á þér eða klórað í svefnherbergishurðina með miklum látum og jafnvel háværu mjálmi í kaupbæti...

...þú býrð til svona lista og ferð að hugsa að nú verðurðu að fara að sinna hinum áhugamálunum betur... ;)


Læt í lokin eina af Skugga fylgja með... við fundum hann þarna eitt kvöldið þegar dóttirin var að fara að sofa, hann er einn af böngsunum bara! ;)



Þartil næst!
Hilda

No comments:

Post a Comment