En semsagt, maður getur keypt eitthvað til að gefa vininum á hverjum degi, eða búið eitthvað til... semsagt, bara gleðja leynivininn en þó án þess að hann viti hver sé að verki ;)
Ég hreinlega ELSKA þennan leik!
Ég sat hérna í sófanum eitt kvöldið og langaði að gera eitthvað fyrir leynivinaleikinn, og mundi þá að ég átti eitthvað af léttlopa-afgöngum og uppskrift að jólakúlu frá PrjónaJónu.
Þetta varð svo útkoman:
Ég veit svo reyndar ekki hvað leynivininum mínum fannst um þessa kúlu, en mér fannst voða gaman að búa hana til og þægilegt að ná að losna við þessa tvo pínulitlu hnykla sem voru búnir að vera að þvælast fyrir mér ;)
Eins og ég sagði áðan, þá er uppskriftin að þessari kúlu fengin frá PrjónaJónu. Hana er hægt að finna inná facebooksíðunni hennar :)
No comments:
Post a Comment