Wednesday, December 21, 2011

Bílastæðaumferðin í desember

Já, bílastæðaumferðin í desember er vægast sagt skrautleg.
Stundum er þetta eins og enginn hafi notað bílastæði áður og enginn virðist vita hvert hann sé að fara eða hvað hann eigi að gera!

Í gær var ég að leita mér að bílastæði fyrir utan Mjóddina, og er ég á pínulitlum bíl sem kemst í langflest stæði. Á móti mér kemur risastór pickup sem svoleiðis tekur allt bílastæðaplanið þegar hann keyrir um, maður skyldi nú halda að ökumaður á slíku ferlíki skyldi hagræða akstri sínum í samræmi við það. En nei, hann fer að troða sér inní litla örtröð sem ég var að smeygja mér framhjá, og einmitt afþví að hann er að troða sér þá þarf ég að færa mig alveg uppvið bíla sem hafði verið lagt í stæðin og þar var ég föst þartil ferlíkið náði að losna og troða sér áfram í leit sinni að stæði. Það er voða erfitt að reyna að lýsa þessu skriflega, en ég bara komst hvorki lönd né strönd fyrir þessu geimskipi fyrr en það var farið... sem er mjög spes þegar maður er á jafn litlum bíl og ég! Ég á í raun voða erfitt með að trúa að bíll af þessari stærðargráðu eigi auðvelt með að komast í jafntroðin bílastæði og eru fyrir utan helstu verslunarkjarnana í desember... ekki nema hann komi fyrir opnun og nái að taka sér fjögur stæði!

En talandi um að mæta fyrir opnun... ég og litli bíllinn minn vorum mætt um hálf 11 í morgun fyrir utan Smáralindina og náðum fantagóðu bílastæði. Ég kláraði mín innkaup sem ég þurfti að gera í Hagkaup og þegar ég yfirgaf Smáralindina rúmlega korter yfir 11 í morgun tók ég eftir því að hin yndislega bílastæðaumferð var að fara að hefjast... mikið er ég nú fegin að vera búin að redda öllum jólagjöfunum!!!

No comments:

Post a Comment