Saturday, December 17, 2011

"Gefðu mér gott í skóinn...

... kæri jólasveinn í nótt!"

Já, þessar elskur sem þramma niður til byggða á nóttunni og koma með gjafir í skóna hjá ungviðinu.
Við minnum börnin okkar á þessa kátu sveina og segjum þeim að ef þau eru ekki stillt og góð þá fái þau kartöflu í skóinn frá sveinka, það er sko það sem óþekku börnin fá! Og börnin þora auðvitað ekki öðru en að vera stillt og góð og gera það sem þau eru beðin um svo þau fái nú eitthvað skemmtilegt í skóinn.

Jólasveinarnir hafa að sjálfsögðu komið við á þessu heimili og hefur annar spariskór heimasætunnar staðið sína plikt í glugganum í herberginu hennar. Hefur hún fengið allskyns smáræði sem hún hefur almennt verið hæstánægð með, og má geta þess að þessi smáræði hafa öll kostað undir 500 krónum... dýrasta hefur verið um 400 kr og það ódýrasta 200 krónur... það þarf semsagt ekki Ipod til að gleðja barnið mitt eða fótboltabúning sem kostar ca 10 þúsund krónur! Í morgun fékk hún til dæmis litla kisu, prinsessutattoo og gjafabréf uppá jólatrúðaís fyrir okkur fjölskylduna, eitthvað sem sveinki keypti inná hópkaup.is... það fannst henni sko ekki leiðinlegt ;) Litla prinsessutattooveraða ísætan er búin að vera hæstánægð með daginn í jólastússinu með okkur foreldrunum... án Ipods!

Ég bara hreinlega skil ekki í þessum jólasveinum sem gefa svona fáránlega dýrar gjafir... hvers eiga börnin að gjalda? Þeirra standard um það sem kemur í skóinn mun rísa uppúr öllu valdi, og ef til þess kemur að jólasveinninn hefur einhverra hluta vegna ekki eins mikið á milli handanna næstu jól þá verða umrædd börn fyrir miklum vonbrigðum. Þau verða sár og svekkt með gómsætu mandarínuna sem jóli setti í skóinn... "ég á eins árs gamlann Ipod sem ég er löngu hætt/-ur að nota! Ég hélt að jólasveinninn myndi gefa mér nýjann í ár, alveg eins og í fyrra!" Megi guð biðja fyrir þessum börnum þegar þau verða stór og komin með eigin börn og jólasveinninn fer að heimsækja þeirra heimili með skógjöfum...

Og ekki láta mig byrja á súkkulaðidagatölunum... afhverju er ekki meira úrval af venjulegum dagatölum með venjulegum fallegum myndum?!? Ég skora á kaupmenn að laga þetta á næsta ári!

No comments:

Post a Comment