(Skrifaði þetta reyndar á mánudaginn í einhverju glensi en ákvað að leyfa þessu að flakka...)
Stress, pirringur, ergelsi, munnsöfnuður og fleira neikvætt... en afhverju? Jú, maður er ekki búinn að ná að klára að gera allt í jólaundirbúningnum og þá bregst maður svona við. Hátíð ljóss og friðar er handan við hornið en skapið í manni gæti sent mann til helvítis ef einungis blótið er tekið gilt.
Eru jólaþrifin ekki búin? Og hvað með það? Er maður hvort eð er ekki alltaf að þrífa hitt og þetta allt árið? Afhverju að pirra sig á því að vera ekki búin að rífa allt útúr eldhússkápunum og spreyja yfirþyrmandi spreyji í skápana og hreinsa út ímyndaðann skít? Það er miklu notalegra að setjast niður við eldhúsborðið með heitann kakóbolla og skreyta piparkökur með ungviðinu. Jafnvel mála jólamyndir. Eða skella skemmtilegri jólamynd í tækið og horfa á hana saman.
Ónei, er ekki búið að kaupa ný föt á alla fjölskylduna??? Til hvers að stressa sig á svoleiðis? Auðvitað er gaman að kaupa falleg jakkaföt á litla drenginn eða ofurkrúttlegann kjól á litlu heimasætuna, en eiga ekki allir betri föt? Oft fá börn líka fín föt í jólagjöf og þá rífa þau sig beint úr jólafötunum til þess að máta nýju flíkurnar og eru svo í þeim restina af kvöldinu, og fara jafnvel í þeim í jólaboðið sem fjölskyldan fer í yfir hátíðarnar.
Úps! Er jólapappírinn búinn?? Og þarftu þá virkilega að rjúka út í næstu búð til að kaupa meira? Afhverju ekki að nota dagblöðin? Nákvæmlega EKKERT að því! Og á þessum árstíma eru jólaauglýsingarnar oftar en ekki með fallegum jólamyndum sem gera pakkann miklu fallegri fyrir vikið. Ef þú átt fallegann borða er hægt að binda hann utan um pakkann til að gera hann ennþá fallegri.
Jólakortin, óneitanlega skemmtileg hefð sem hefur því miður verið að detta niður eftir tilkomu internetsins og gsm símanna. Það er ekkert að því að senda þau annaðhvort milli jóla og nýárs eða bara í janúar. Jólaseríurnar fá oft að hanga uppi við hjá fólki fram í febrúar, svo afhverju að hætta við að senda jólakortin þótt það sé kominn janúar???
„Í kjólinn fyrir jólin,“ eða „tólin fyrir jólin“ átök eru jú sniðug, en afhverju að byrja í nóvember og sprengja sig út og vera svo hundóánægður á þorláksmessu vegna þess að þessi aukakíló sem þú ætlaðir þér að vera laus við fyrir jól eru ennþá utaná þér? Maður hefur alveg heilt ár til þess að púla og svitna í ræktinni fyrir næstu jól.
Ohh, gleymdist að kaupa fokdýra miða á jólatónleikana?? En bíddu, eru ekki alltaf reglulega tónleikar yfir árið? Jafnvel á lægra verði?
Og jólaklippingin! Sjitt, auðvitað má ekki gleyma að panta tíma í hana! Svona afþví að hárið verður uppsett og fínt og flott með spennum eða slíkum flottheitum...
Ómægad! Ég þarf að fara og gera mig klára fyrir Zumbatímann! Þarf auðvitað að lúkka vel í nýkeypta jólakjólnum, þetta er þriðji Zumbatíminn minn og ég skal vera laus við bumbuna á aðfangadag, annars held ég inni maganum! Svo þegar ég kem heim í kvöld ætla ég að taka enn eina þriftörnina í stofunni, andskotans rykið má ekki sjást núna sko! Fokk! Verð að koma við í búð á leiðinni og kaupa meiri jólapappír! Fer svo í jólaklippinguna núna í vikunni en ég gleymdi að kaupa miða á tónleikana sem mig langaði svo að fara á. Heyrðu já, svo er ég ekkert búin að pæla í jólakortunum... DJÖ!!!
No comments:
Post a Comment