Mér finnst gaman að prjóna, eins og ég hef áður sagt.
Ég er ekki brjálæðislega dugleg við að prjóna stór verkefni, eins og t.d. peysur en mér finnst gaman að skoða hinar ýmsu prjónapeysur og skoða munstur og svoleiðis...
Núna fyrir stuttu afrekaði ég það að prjóna heila peysu á sjálfa mig á bara nokkuð stuttum tíma!
Téð peysa er úr Bulkylopa og prjónuð á prjóna númer 12! ;)
Ég var ómáluð og geðsleg þegar myndatökur fóru fram svo ég gerði smá "lýtaaðgerð" á sjálfri mér í Photoshop áður en ég skellti myndunum á Ravelry ;)
Smelltu hér til að sjá peysuna mína á Ravelry
Í gær var ég að skoða allskyns hugmyndir á netinu, og slatta af svona DIY verkefnum. Mér finnst rosalega margir þessa dagana vera að gera skartgripageymslur í ramma og selja, s.s. setja fallegt efni/pappír í bakgrunn og króka og þá er hægt að hengja hálsmen á og dáðst að. Rosalega einfalt!
Mig langaði að gera eitthvað svipað sem gæti nýst mér. Það þýðir lítið fyrir mig að gera svona fyrir skartgripina mína, geng ekki með mikið af skarti... einn hringur sem ég ber daglega og stundum er ég með hálsmen og úr!
Auðvitað vantaði mig eitthvað fyrir prjónamerkin mín! Það er smátt og smátt að aukast í því litla safni, þótt það sé voða lítið enn, og það er ekki voðalega gaman að týna þeim!
Ég á slatta af Ikea römmum sem ég keypti einhverntímann og ætlaði að mála og setja flottar myndir í... málaði reyndar nokkra þeirra en notaði svo ekki alla ein jólin þegar gefnar voru myndir af dótturinni. Svo ég tók einn sem ég hafði málað svartann, klippti til smá efnisbút af stranga sem ég á (btw EINI efnisstranginn sem ég á!), náði mér í króka sem kallinn átti í verkfærakassanum og bjó til prjónamerkjageymslu sem hægt er að dást að!
Ég lenti reyndar í pínu vandræðum þarsem krókarnir eru svolítið langir en ramminn þunnur, en reddaði því með því að ná mér í kassa og klippa niður nokkrar bakhliðar sem ég límdi svo aftaná rammann með límbyssu. Svo náði maðurinn minn í smá girni sem hann þræddi í gegnum pappann aftaná og batt saman, og þarmeð var hægt að hengja herlegheitin upp ;)
Hér er svo útkoman, og er þetta löööngu komið upp á vegg fyrir mig til að dást að ;)
Smelltu hér til að sjá myndina
En núna vantar mig bara að finna fræ til að geta ræktað mitt eigið peningatré...
Sæl og blessuð:) Þú losnar aldrei við mig:) Heyrðu, prjónamerkjageymslan þín er rosalega flott!
ReplyDeletehahaha, þú ert allstaðar!! ;) hahahaha takk fyrir það :D
DeleteÓ já:) Ég er allstaðar og jafnvel víðar :)
DeleteRosalega gaman að lesa bloggið þitt Hilda, mun fylgjast með hér :)
ReplyDeleteKv. Heiða "bekkjarsystir" :)
takk fyrir það ;)
ReplyDelete