Friday, April 13, 2012

Pennavinir... úrelt fyrirbæri?

Þegar ég var krakki var mikið sport að eiga pennavini, og helst sem flesta.

Maður skoðaði blöð á borð við Æskuna sem höfðu auglýsingadálka fyrir pennavini, og þar voru krakkar um allt landið að óska eftir pennavinum á svipuðum aldri, með svipuð áhugamál og maður sjálfur o.s.fr.v. Maður valdi svo bara einhverja manneskju og sendi henni bréf. Maður s.s. handskrifaði bréf sjálfur, setti í umslag og fór á pósthúsið og setti bréfið í póst. Þá gat það tekið bréfin allt að viku að berast viðtakanda, ekki 1-2 daga líkt og í dag.

Og það sem það var nú gaman að fá bréf til baka! Spennan að sjá að það væri komið bréf sem var stílað á mann sjálfan, og hvað skyldi standa í því! Skyldi sendandinn jafnvel hafa sent mynd af sér með svo maður vissi hvernig viðkomandi leit út? Allt saman svo ótrúlega spennandi og skemmtilegt :)
Svo þegar það kom talva á heimilið þá skrifaði maður stundum bréfin í henni og prentaði út og sendi, en eini gallinn við það var sá að það var dýrara að senda þau þarsem prentarapappírinn var þyngri heldur en línustrikuðu blöðin úr A4 bókinni. Og á stuttu tímabili var sparað pappírinn og floppy-diskur sendur á milli í staðinn, sem var reyndar ennþá dýrara en maður gat skrifað óendanlega langt bréf og sett allskonar myndir með sem var ekki hægt með upprunalegu aðferðinni.

Svo komu gemsarnir og þá fór maður stundum að senda sms á milli bréfasendinga, jafnvel hringjast á og spjalla smá.

Svo þegar maður varð aðeins eldri voru bréfasendingarnar hættar og við tóku email-skrif.

Og síðan ekkert! Finito - búið!
Ekki lengur töff að eiga pennavini!

Í dag höfum við Facebook, sem er jú samskiptasíða og að vissu leyti er kannski hægt að líta á hana sem "pennavinasamskiptastöð."

Ég vil samt skora á hvern og einn, að setjast niður með blað og penna (eða blýant) og skrifa bréf til einhvers sem þú þekkir, setja það í umslag og fara með það á pósthúsið og senda það til viðkomandi. Það þarf ekki að vera nein ritgerð, bara eitthvað smotterí... hrósa viðkomandi eða bara spyrja hvort hann/hún vilji koma í bíó eða á kaffihús einhvern ákveðinn dag... líka hægt að senda póstkort!

Consider yourself challenged!

No comments:

Post a Comment