Nýir tímar - ný tækifæri!
Nú er kominn enn einn mánuðurinn, og afhverju ekki að gera eitthvað nýtt?
Í þetta sinn ákvað ég á síðustu stundu að taka þátt í myndaáskorun sem systir mín hafði fundið á facebook... það skondna er svo að systa er svo ekki sjálf búin að birta eina einustu mynd! ;)
Hér koma myndirnar sem ég er búin að taka so far, ætla svo að reyna að koma með þær hingað reglulega svo forvitnir geti skoðað... en ég ákvað að vera ekki að bögga fésbókarvini mína með þeim ;)
Planið!
1. maí: I bought this! (Verslaði s.s. ekkert)
2. maí: Morning ritual
3. maí: This is really good!
Ef þið eruð á instagram skuluð þið endilega tékka á #maíáskorun og sjá myndirnar sem ég og fleiri erum að taka í þessari áskorun ;)
Annars er maður í smá ruglingi þessa dagana, alltaf frídagur í hverri viku og læti bara... hvernig verður þetta eiginlega þegar maður þarf svo að vinna heila vinnuviku aftur?!? ;)
No comments:
Post a Comment