Saturday, August 3, 2013

Allt að gerast!

Jahá... ég er nú ekkert sérstaklega öflugur bloggari... ætlaði í byrjun júní að demba inn myndum úr maíáskoruninni sem fór fram á Instagram... *flautflaut*

Það er komin verslunarmannahelgi! Sem þýðir... það styttist í rútínu! Og það glænýja rútínu!
Litla barnið mitt er að byrja í 1. bekk í grunnskóla, maðurinn minn er að byrja í tölvunarfræði í HR og ég sjálf er að byrja í BA námi í íslensku í HÍ... alltof spennandi, en um leið yfirmáta stressandi, tímar framundan!
 Í tilefni þess fær Aðalheiður nýtt herbergi. Já, prinsessuþemað fær að fjúka og í staðinn kemur þemalaust stórustelpuherbergi... erum meira að segja að íhuga alvarlega að splæsa í nýtt rúm handa henni líka! Allt að gerast! Skal reyna að muna eftir því að koma með myndir þegar það er tilbúið.

En það eru ekki einu framkvæmdirnar á heimilinu, ónehei! Núna loksins erum við hjúin að fara að skella upp rúmgafli, náttborðum og veggljósum í svefnherbergið okkar! Kominn tími til... erum "bara" búin að búa hérna í 6 ár... kem einnig með myndir frá þeim framkvæmdum því þetta verður DIY verkefni sem ég er búin að vera yfir mig spennt fyrir í nokkra mánuði!


(Og ég veit hvaða lag er kominn í hausinn á ykkur núna!) ;)

I´ll see ya when I see ya!

Hilda

No comments:

Post a Comment