Dripp, dripp, dripp...
Rigning...
Maður fær bara nettan sumarfíling af þessu!
Skólinn er byrjaður af fullum krafti... auðvitað þurfti talvan að koma með mótmæli svo henni var skutlað í viðgerð svo ég hef ekkert getað notað hana í skólanum... stílabók og penni eru svo reyndar afskaplega þægileg námsgögn ;)
Ég er búin að sjá margar týpur af fólki í skólanum, sem ég vissi reyndar fyrirfram að ég myndi gera ;)
Það er einmitt eitt af því sem ég elska strax við að vera þarna, hver og einn er sjálfstæður einstaklingur og er óhræddur við sinn eigin stíl. Afhverju var ég ekki búin að taka þetta skref fyrir löngu síðan?!?
Dripp, dripp, dripp...
Fjúss...
Smá vindur kominn í takt við regnið...
Ein af mínum fyrstu fjárfestingum í skólanum var kaffikort... veitir ekki af...
Farin að sofa, skóli á morgun!
No comments:
Post a Comment