Matarræðið er svona upp og ofan, en er nú samt í hollara laginu, t.d. útbjó ég mér þvílíkt girnó salat í hádeginu í gær. Ég týndi í raun bara til það sem ég fann og finnst gott, en vildi að sjálfsögðu hafa það í hollari kantinum og ekki verra ef það væri fljótlegt ;) Ég endaði á að glutra saman kínakáli, gúrku, rauðri papriku, hnetum, gulum baunum, ananasbitum, kotasælu og soðnu eggi og með því sötraði ég mitt græna te ;)
Jább, ég tók mynd áður en þetta var alveg reddí! Óþolinmóða ég!
Þessa vikuna er ég svo búin að skella mér tvisvar í zumba. Á mánudaginn fór ég í klukkutíma tíma og svo núna í kvöld (föstudag) var Zumba Partý sem varði í 90 mínútur, ég hefði alveg verið til í að vera lengur!
Ofurhress eftir 90 mínútna zumba!
Námið gengur svo bara vel. Þessa dagana er ég búin að vera að vinna í heimaverkefnum og tveimur ritgerðum. Ég skilaði heimaverkefni vikunnar í gær og í dag náði ég að vinna vel í ljóðaritgerð sem á að skila á miðvikudaginn. Ég hef lengri tíma til að vinna í hinni ritgerðinni svo ljóðaritgerðin fær forgang núna um helgina, skiljanlega ;)
Holli morgunmaturinn gengur frábærlega! Ég er búin að koma sjálfri mér (og sennilega manninum mínum) alveg svakalega á óvart, en ég er s.s. oftar búin að vera að fá mér hafragraut í staðinn fyrir boost á morgnana! Þetta er allt að gerast, áfram ég! ;)
Brasaði þennan fyrir manninn minn í sumar... dóttirin varð hrifin og því er þetta gert af og til á morgnana ;)
Skipulögðu þrifin og tiltektin... tjah, það er dagamunur á því en ætli ég myndi ekki samt segja að miðað við allt gangi það vel. Það tekur jú sinn toll að vera að vinna í þessum ritgerðum og verkefnum, maðurinn minn er jú líka á fullu í sínu námi og við reynum svo líka að eyða tíma með dótturinni svo eitthvað verður að fá að sitja á hakanum endrum og eins ;)
Annars er ég búin að vera aðeins og flörta við vin minn Ebay undanfarið, stunda verðkannanir og slíkt... en það er bara efni í annað blogg! ;)
C ya when I see ya!
No comments:
Post a Comment