Af og til versla ég líka á ebay, en ég skoða samt mun meira heldur en ég versla! ;)
Dæmi um það sem ég hef spreðað í:
Borgaði heilar 236 íslenskar krónur fyrir þessar elskur í heildina! Enginn auka sendingarkostnaður eða neitt!
Fyrir þessa borgaði ég 158 íslenskar krónur, og rétt eins og með hitt parið var enginn auka sendingarkostnaður af þessum elskum eða neitt slíkt!
Hér er svo partur af afmælisgjöf dótturinnar, kostaði heilar 553 íslenskar krónur og rétt eins og með fyrri pantanirnar tvær var enginn aukalegur sendingarkostnaður!
Núna er ég svo að bíða eftir að þessar mottur detti inn um lúguna, eru væntanlegar núna á næstu dögum. Fyrir þrjár mottur saman í pakka borga ég heilar 199 íslenskar krónur, enginn aukalegur sendingarkostnaður!
Þarsem bíllykillinn minn er ónýtur ákváðum við að splæsa í svona repair kit og sjá hvort við getum fiffað þetta til sjálf. Ég pantaði þennan á miðvikudaginn, hann fór í póst á fimmtudaginn frá Cambridge og var kominn í lúguna hjá mér í dag, mánudag. Það kalla ég ofursendingu! ;) Fyrir þetta borgaði ég svo 1053 íslenskar krónur og 492 krónur í sendingarkostnað.
Svo er ég búin að fá eina jólagjöf í hendurnar og amk ein önnur er væntanleg á næstunni, en skiljanlega er ég ekki að fara að birta þær hér! ;)
En er það nokkur furða að ég sé fallin fyrir ebay? Nei ég bara spyr...
No comments:
Post a Comment