Skólinn er búinn hjá okkur Stefáni og nú taka lokaprófin við. Fyrsta prófið hans Stefáns er einmitt á morgun svo hann er búinn að vera fjarverandi í allan dag, og er reyndar enn í skólanum núna og ég hef ekki hugmynd um hvenær hann er væntanlegur heim.
Fyrsta prófið mitt er á þriðjudaginn, það næsta á fimmtudag og það þriðja og síðasta er akkúrat viku síðar. Ég væri að ljúga ef ég segði að ég væri ekki stressuð, já ljúga segi ég!
Ég er nú ekki komin á þann stað að ég sé að gjörsamlega að farast, but let´s not get ahead of ourselves!
Fyrsti í aðventu er eftir tvo daga og ég er sko löngu búin að fjárfesta í kertum í kransinn þetta árið... hinsvegar hef ég ekki hugmynd um útlit hans að þessu sinni... það verður eitthvað...
Kannski endar þetta bara eitthvað í líkingu við þessa hér:
Ókei samt örugglega ekki, kertin sem ég keypti passa ekki í neitt af þessu! En þessir eru örugglega frekar ódýrir í heildina en um leið flottir, oft er nóg að horfa bara í kringum sig í stað þess að rjúka til og kaupa eitthvað fyrir morðfjár! ;)
Annars átti ég afmæli á sunnudaginn síðasta, ég held ég hafi sjaldan átt eins rólegan afmælisdag... kallinn var að vinna og við gormalína vorum bara tvær heima, ásamt kettinum... sú stutta var bara að dunda sér frameftir degi og ég vann í ritgerðunum mínum ásamt því að taka við heillaóskum á facebook og tilheyrandi slökun... enda veitti ekki af að hafa almennilegan slökunardag fyrir þessa viku sem nú er loks búin! Kláraði tvær ritgerðir og skilaði þeim loksins inn í dag við mikla kátínu innra með mér, það var sko nefnilega enginn með mér til að stíga trylltan dans niðrí Árnagarði fyrir framan pósthólfin! ;)
En eftir 13 daga verður stiginn trylltur dans, trylltur! Já, ég sagði það og ég mana ÞIG til að stíga hann með mér! Tökum einn trylltan saman! Það verður tryllt! Ókei, komið gott!
Let´s do this! ;)
Laterz!
No comments:
Post a Comment