Já... er ekki bara ágætt að gera upp svona viðburðarríkt ár með einu stykki bloggfærslu heldur en með facebook-status? Jú ég held það nú! ;)
Þetta blessaða ár byrjaði bara ósköp sakleysislega. Ég var tryllt í Zumba og náði að mæta rosalega vel í janúar... eða alveg þartil ég fór í endajaxlatökuna alræmdu. Hún átti jú að vera ósköp saklaus, bara taka burt þrjá endajaxla og vera frá vinnu í kannski viku, eina og hálfa í mesta lagi... auðvitað gat ég ekkert fylgt þeim leiðbeiningum og fékk þráláta sýkingu í herlegheitin og var meira og minna rúmliggjandi í mánuð! Var ansi stutt frá því að vera lögð inn á spítala til að fá sýklalyf í æð en slapp frá því.
Ég var góðan tíma að jafna mig eftir þetta og þurfti að fara mér hægt af stað í vinnunni, Zumba og öðru enda var þetta mikið álag á líkamann og hann þurfti sinn tíma til að ná sér á strik aftur.
 |
Kælipokarnir sem voru miklir vinir mínir í febrúar! |
Stefán kláraði þriðju önnina í Frumgreinadeildinni í HR í vor með flottum einkunnum. Hann ákvað að láta reyna á að sækja um tölvunarfræðinni og komst þangað inn svo hann byrjaði þar í haust, og leit þarmeð á sjálfan sig sem formlegan háskólanema ;)
 |
Útskrift Aðalheiðar frá Seljaborg |
Aðalheiður Ósk, ljósið okkar og yndi, gekk einnig í gegnum nokkrar breytingar á árinu. Hún kláraði síðasta árið sitt á leikskólanum Seljaborg og fór meðal annars með hópnum sínum í sveitaferð að Bjarteyjarsandi og gistu þau þar eina nótt. Það var heljarinnar ævintýri og margt að segja frá og langaði henni helst að fá að fara strax aftur. Hún byrjaði svo í 1. bekk í Ölduselsskóla núna í haust og er búin að blómstra heil ósköp þar og eignast fleiri vini og félaga. Besta vinkona hennar, hún Elísa, flutti svo í næsta stigagang við okkur (jú, fjölskyldan hennar fylgdi með) og má með sanni segja að þær tvær séu heimalingar heima hjá hvor annarri og sáttar við lífið og tilveruna með hvor aðra sér við hlið ;)
 |
Skólaboðunin þegar vinkonurnar fengu að vita að þær yrðu saman í bekk ;) |

En eins og vel flestum er kunnugt þá voru það ekki bara þau feðginin sem færðu sig á nýjan vettvang í haust. Það var einn fallegan vordag í maí sem ég gekk inn á skrifstofuna til Sigrúnar skólastjóra og sagði upp vinnunni minni. Eftir að hafa fullvissað hana um að ég væri ekki að grínast (sem var reyndar virkilega skemmtilegt) sagði ég frá áætlunum mínum um að hefja nám í íslensku í Háskóla Íslands, en ég hafði fengið að vita að ég hefði fengið inngöngu þar í byrjun apríl. Ég kláraði minn uppsagnarfrest eins og lög gera ráð fyrir og skundaði svo í Háskólann 2. september og hóf formlega mína háskólagöngu, með risastóran spennuhnút í maganum! ;)
Sumarið var óskaplega notalegt, en við fórum ekki voðalega mikið útfyrir höfuðborgina. Stefán var mestmegnis að vinna í Intersport en hann varð þrítugur þann 4. júlí. Við slógum upp veislu honum til heiðurs hér heima og fékk ég að reyna á eldhúshæfni mína og útbjó heil ósköp af smáréttum/pinnamat sem ég held að hafi tekist ágætlega hjá mér. Við skelltum okkur svo í bústað í Ölfusborgum í eina viku, akkúrat þessa viku höfðu veðurguðirnir ákveðið að ætti að vökva blómin uppá hvern einasta dag en við gerðum bara gott úr því samt.
Fórum í Slakka og Þingborg...
og kíktum líka á Gullfoss og Geysi
Haustið gekk sinn nýja vanagang. Við öll rukum á fætur á morgnana og pössuðum uppá skólatöskurnar okkar...
"Er nestið hennar Aðalheiðar tilbúið?" "Ertu með lyklana þína?" "Hvar er síminn minn?!?"
 |
Fyrsti skóladagurinn hennar Aðalheiðar í Ölduselsskóla |
 |
Fyrsti skóladagurinn minn í Háskólanum ;) |
Desemberbyrjun var óskaplega erfið. Við foreldrarnir fórum í lokaprófatörn sem lauk 12. desember. Nýju nágrannarnir okkar í hinum stigaganginum reyndust okkur svo óendanlega vel og kunnum við þeim hinar mestu þakkir fyrir! Þau buðu Aðalheiði að koma til sín beint eftir dægradvölina á daginn og var hún hjá þeim fram að kvöldmat svo foreldrarnir gætu nýtt tímann til að læra... eða amk ég þar sem Stefán flutti lögheimilið í HR og lærði þar með félögum sínum, það komu dagar sem hann fór að heiman klukkan 8 að morgni og kom heim um miðnætti svo það má með sanni segja að við vorum afskaplega slitin fjölskylda á meðan þessi ósköp dundu yfir (og það er ekki laust við að maður sjái þetta endurtaka sig amk í einhverri mynd í hverri prófatörn sem koma skal).





Jólaundirbúningurinn gekk síðan frábærlega eftir að prófatörn lauk og hef ég sjaldan upplifað það að vera svona pollróleg fyrir jólin! Jólin eru annars búin að vera afskaplega yndisleg og róleg, svo ég tali nú ekki um letileg! ;) Við litla fjölskyldan eyddum aðfangadagskvöldinu hér heima í pakkaflóði og rólegheitum, og á jóladag fórum við í hangikjet til Önnu Heiðu systur minnar og fjölskyldu í Keflavík. Sá gjörningur er orðinn að hefð hjá okkur og tilhugsunin um að sleppa hangikjötinu hjá þeim á jóladag er orðin óbærileg, þetta er alltof notalegt og skemmtilegt til að sleppa því! ;)
 |
Ótrúlega eðlilegar systur! ;) |
 |
Aðfangadagskvöld hjá litlu fjölskyldunni |
Í gær, daginn fyrir Gamlársdag, ákvað svo hún krúttaða tengdamóðir mín að bjóða stórfjölskyldunni til sín í kalkúnaveislu (enda um að gera að nota síðasta tækifærið á árinu til að hóa öllum saman!) Við vorum mætt þangað snemma með okkar hjálparhendur við verknaðinn sem tókst hreint út sagt frábærlega og heyrði ég ekki betur en að allir væru sáttir við uppátækið. Fyrir mér mætti endurtaka þetta að ári enda alltaf gaman að hitta allt þetta skemmtilega fólk ;)
 |
Tengdamamma við eldamennskuna ;) |
 |
Stefán að myndast við að undirbúa sósuna ;) |
Þrátt fyrir að dagarnir milli jóla og nýárs séu búnir að vera að mestu rólegir og letilegir ákvað hún Aðalheiður Ósk samt sem áður að við yrðum nú að skella einhverri uppákomu þangað inn í ársyfirlitið, það gengur jú ekki að hafa eitt stórt LETI skrifað þar yfir allt! ;) Á annan í jólum fékk hún leyfi til að fara að renna með Elísu á þotunni hennar Elísu (en sleðinn hennar Aðalheiðar hvarf á undarlegan og ömurlegan hátt úr sameigninni okkar rétt fyrir jól og hefur enn ekki fundist!) Þær skemmtu sér konunglega, og að sjálfsögðu voru fleiri börn í brekkunni að renna og skemmta sér. Aðalheiður gaf sig á tal við einn drenginn sem á staðnum var og fékk leyfi hjá honum til að prófa sleðann hans, sem miðað við lýsingar hefur verið gulur og svartur Stiga-sleði. Sú ferð endaði ekki betur en svo að hún lenti á grindverki sem er neðst í brekkunni og endaði hún alblóðug í andlitinu. Faðir drengsins sem átti sleðann var á staðnum og fylgdi henni heim og tjáði mér hvað hafði komið fyrir þegar ég kom til dyra, ég þakkaði honum að sjálfsögðu fyrir að hafa komið henni heim áður en ég skellti hurðinni á nefið á honum og fór að sinna skottunni. Eftir að hafa fjarlægt blóðug föt og hreinsað burt mesta blóðið úr andlitinu fengum við foreldrarnir að fylgjast með þegar efri vörin og nefið tóku að blása út og mynda hinar myndarlegustu bólgur. Við fórum með hana á Slysavarðstofuna þar sem hún var skoðuð og hlustuð sáust engar sýnilegar skekkjur í nefinu og tennurnar virtust einnig hafa sloppið. Við héldum því heim á leið í rólegheitin næstu daga vopnuð bæklingi um höfuðhögg og beiðni um að fylgjast með nefinu og sjá hvort okkur fyndist það vera einhver skekkja þegar bólgan hjaðnaði.
Þetta fékk skiljanlega mjög á hina ungu dömu á meðan bólgan var sem mest og til að byrja með vildi hún ekki hitta neinn né horfa á sjálfa sig í spegli, hún fór samt reglulega inn á bað til að athuga hvort bólgan væri farin. Bólgurnar fóru samt fljótt og vel og staðan í dag er sú að hin unga hetja er marin og með sár í andlitinu en þegar hún vaknaði í fyrradag og leit í spegil heyrðist í henni: "Vá! Nú er ég loksins orðin venjuleg!"
Já, það er viðburðarríkt og skemmtilegt ár sem við sprengjum burt í kvöld. Við tekur hið nýja ár 2014 sem við fögnum með gleði og spennu. Gleði fyrir nýjum tækifærum og nýjum aðstæðum og spennu fyrir nýjum tækifærum og nýjum aðstæðum ;)
Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla. Megi árið 2014 færa ykkur gleði, spennu, kærleik og öll góðu lýsingarorðin sem orðabókin hefur að geyma! ;)
 |
Við Skuggi vorum í "stríði"... þarna vann hann! ;)
|
 |
Sætust á leið á jólaball í skólanum :) |
 |
Aðalheiður fékk Draugaspilið í jólagjöf, það er ótrúlega skemmtilegt! ;) |
 |
Við fórum í bíó á árinu, sáum myndina Planes og buðum Elísu að sjálfsögðu að koma með ;) |
No comments:
Post a Comment