Já... ég byrjaði af of miklum krafti og líkaminn höndlaði það ekki... gott að byrja nýja rútínu rólega (enda skólinn nýbyrjaður eftir jólafríið með glænýrri rútínu!) og hefja upp zumba-þolið og þá skulum við ræða saman um hreyfingaáskoranir ;) En ég hef sko staðið við allt hitt sem ég bloggaði um síðast, ég lofa!
Ég var búin að lofa að tala um ebay-kaupin sem ég gerði fyrir jól...
Dóttirin fékk þetta í jólagjöf, keypti það á 20 dollara og borgaði ca 1500 kr minnir mig í toll. Skottan er alsæl með það og fór í því í fyrsta danstímann eftir jólafrí og var að fíla sig í tætlur! ;)
Við gáfum svo mági mínum pakka af svona glæsilegum dömum, enda er hann mikill golfari ;) Fékk pakkann á 2.73 dollara og slapp við tollinn svo ekki varð þessi jólagjöf dýr en ansi skemmtileg samt ;)
Ég ætlaði svo ekki að versla neitt á ebay alveg strax, þó svo ég kíki á það reglulega... það er erfitt að standast freistingar... svo kötturinn skrapp í tölvuna og tók þátt í uppboði og fékk þessa á 7.50 dollara, hún er væntanleg á næstunni svo það á eftir að koma í ljós hvort hún stoppi í tollinum eða ekki... en ég ELSKA kisann minn fyrir þetta uppátæki! ;)
Eftir allt jólafíneríið langaði húsmóðurinni allt í einu svo óstjórnlega í loðkraga, eitthvað sem mér hefði aldrei dottið í hug að myndi gerast! Ég sá slíkan á sölusíðu á facebook og sá kostaði heilar 12.000 krónur takk fyrir, ekki alveg að fara að gerast hjá húsmóður á námslánum! Svo ég kíkti á ebay, meira í ganni heldur en alvöru, og fann nákvæmlega sömu mynd og téð sölusíða notast við og tók þátt í uppboði og vann kragann fyrir heila 19 dollara! Hann er einnig væntanlegur á næstu dögum svo ég veit ekki hvort tollurinn þurfi að þefa af honum eða ekki, en samt verður það mun ódýrara heldur en að versla af sölusíðunni (ég myndi heldur aldrei versla svona kraga fyrir svona hátt verð!)
Já... kannski ég láti vera að kíkja meira á ebay... amk þennan mánuðinn! ;)
Þar til næst... guð má vita hvenær það verður, skólinn er byrjaður með algjöru trompi!
ohh ég er alveg að fýla þessa tösku.. fullt af hólfum og BLEIK!! sem gerir hana enn flottari. :D
ReplyDeleteJá akkúrat þau atriði sem gjörsamlega kölluðu á mig! Ég ELSKA töskur!! Er hinsvegar búin að vera í töskukaupabanni alltof lengi...
Delete