... til Skugga!
Já, eins og fésbókarvinir mínir hafa kannski tekið eftir þá hef ég tekið eina eða tvær (eða þrjár...) myndir af Skugganum mínum, kettinum, og því ákvað ég að henda í eina bloggfærslu honum til heiðurs.
Eins og áður segir þá heitir hann Skuggi, hann er einhverskonar eðalblanda (fengum hann í því skyni að hann væri blanda af skógarketti og Maine Coon, en guð má vita hversu rétt það er!)
Hann á afmæli í apríl og verður þá 3 ára, en við fengum hann til okkar þegar hann var 8 vikna. Ég vildi endilega að hann myndi heita Skuggi því hann elti mig hvert sem ég fór hér heima, og reyndar gerir hann það enn þegar við erum bara tvö heima í kotinu en hann er inniköttur svo hann er að sjálfsögðu alltaf heima ;)
Hann er mjög leikglaður, en um leið getur hann líka verið óskaplega latur en þó er hann nær alltaf til í að leika. Hann eeeeeeelskar pappakassa, maður er varla búinn að láta frá sér slíkan þegar hann er mættur og búinn að stinga höfðinu ofan í hann af einskærri forvitni! Og ef kassinn er tómur þá er hann búinn að koma sér vel fyrir ofan í honum nokkrum sekúndum síðar! ;)
Hann er aðeins stærri en venjulegur húsköttur...
Maðurinn minn leyfði honum að sleikja beinið af lærinu sem við vorum með í matinn seinustu helgi... Skugga fannst það ekkert leiðinlegt!
![]() |
Svona var hann um daginn á meðan ég fór í morgunsturtuna... |
![]() |
Þarna svaf hann þónokkrum sinnum á meðan jólatréð var uppi... |
En hann kann alveg að gera meira en að sofa, líkt og ég sagði áðan þá elskar hann pappakassa...
![]() |
Þarna hafði ég verið nýkomin heim eftir að hafa í flugfraktina að sækja pakka með jólagjöfum að austan, ég var bara búin að losa límbandið þegar minn tróð hausnum á sér ofan í... |
Ég gæti haldið áfram endalaust...
en ég set punktinn hér, þið hljótið að vera komin með nóg í bili!
Kveð með þessari mynd sem ég tók af honum bara núna áðan, áður en ég fór í sturtu. Ég sat hérna í allan morgun að leysa verkefni fyrir skólann og hann vappaði hérna allt í kringum mig með mikla athyglisþrá, reyndi að sleikja tölvuna mína og ég veit ekki hvað... svo þegar ég var búin að senda verkefnið tók ég hann í fangið og knúsaði hann vel og mikið, hann þakkaði fyrir sig með háværu máli og tók sig til við að snyrta hárið á mér eins og honum einum er lagið...
Þartil næst!
Skuggi er snilldar köttur - alveg eðal :D
ReplyDelete