Monday, February 17, 2014

Nutella kaffi

Í dag er mánudagur, og það vita allir hvað sagt er um mánudaga!

Ég var búin að setja sjálfri mér fyrir að lesa sem vindurinn í allan morgun, enda varð ekki mikið úr lærdóm í gær sökum þess að bakið ákvað að stríða mér og gefa mér verki, ég hef reyndar sennilegast sofið eitthvað ofur asnalega því ekki er hún ég þekkt fyrir að vera bakveik. En hvað um það...

Fyrir ekki svo löngu síðan keypti ég mér kaffi, fann bara kaffi í hillunni í Krónunni sem mig langaði að smakka. Pakkinn var rosa flottur, svartur og fjólublár, og það stóð á honum að þetta væri sterkt kaffi sem ég ákvað að myndi sennilega henta mér í lærdómi. Svo kem ég heim og helli uppá og þá er þetta með öllu ódrekkandi! Alltof sterkt fyrir mig, úff!!! Svo pakkinn er búinn að vera í lokaðri krukku við hliðina á Senseo-vélinni alls ósnertur fyrir utan þennan eina púða sem ég notaði... jú svo kom frændi mannsins míns í heimsókn um daginn og kallinn hellti uppá tvo bolla fyrir þá og notaði viðbjóðinn... úff... þeir vildu samt meina að þetta væri vel drykkjarhæft... ég held þeir hafi bara verið að reyna að halda í karlmennskuna og kúlið...

En jæja... ég var svo að versla í síðustu viku (já, ég versla mjög reglulega líkt og flestir) og í einhverju augnablikskasti tek ég krukku af Nutella súkkulaðismjöri, það hef ég ekki keypt í mörg ár! Dóttir mín (6 ára) hafði ekki hugmynd um hvað ég var nú búin að setja á borðið fyrir framan þær vinkonurnar um helgina þegar ég bauð þeim uppá snúða með Nutella... sem var algjör tilraunastarfsemi en ekkert smá gott!

En snúum okkur að mér aftur... hér sat ég áðan og gúgglaði sem vindurinn og búin að undirbúa lestur dagsins... en gat ekki hætt að hugsa um kaffi... og Nutella-krukkuna sem var uppí skáp... svo ég gúgglaði þetta tvennt saman... og fann allskyns uppskriftir sem innihalda kaffi og Nutella... saman... slef! Ég ætlaði að vera rosa dugleg að lesa og svo kannski íhuga að skella í tilraunastarfsemi... en nei, tókst ekki! Ég ætlaði bara að hella uppá einn kaffibolla, venjulegan, fyrir lesturinn... allt í einu missti ég alla stjórn á höndunum og hér er mjög svo einföld útkoman, gjörið svo vel!

Nutella kaffi

Það sem þarf:
Kaffi (mælt er með að nota sterkt kaffi)
Nutella (offkors!)
Mjólk (ég notaði létt mjólk)


Aðferð:
Takið lögg (ég var svo áköf að ég mældi ekkert) af mjólk og hitið í örbylgjuofni (það má alveg hita í potti en eins og ég sagði, ákefðin...)


Þegar búið er að hita mjólkina er gott að þeyta hana svolítið. Á einu blogginu sem ég rambaði á í gúgglinu er talað um að skutla mjólkinni í blender en ég myndi fara varlega í það, sumar blender-könnur höndla heitt illa og geta átt á hættu að springa. Ég hinsvegar notaði litla þeytarann sem maðurinn minn kom með í sambúðina fyrir 8 árum síðan (ókei... bráðum 9 ár...) en hann er upprunalega úr Ikea, ég nota hann afskaplega lítið og tók eftir að batteríið er orðið lélegt svo hann var ekki að virka sem skyldi, t.d. gafst hann upp í miðju kafi en ég náði lífi í hann aftur... þar til hann gaf sig aftur en þá var ég hvort eð er orðin þreytt á að þeyta (ákefðin þið munið)...


Á meðan á þessu stóð tók ég fram bollann sem átti að hýsa herlegheitin (þarna erum við að tala um að multitaska...) og hitaði hann með því að láta heitt vatn renna í hann. Og svo kom að því...
Setja eina... ókei, tvær skeiðar af Nutella í bollann og láta síðan heitt kaffið yfir! Og að sjálfsögðu á að sleikja skeiðina á meðan verið er að hella uppá kaffið! Helst bæta á hana líka og sleikja það af!


Þegar kaffið er komið í er gott að hræra í til að hjálpa súkkulaðinu að bráðna, og svo má að sjálfsögðu sleikja skeiðina aftur ef þurfa þykir!


Þegar búið er að hræra, og sleikja skeiðina, er komið að því að skutla mjólkinni í. Ef þið eruð eins og ég, þá skuluð þið ekki kippa ykkur upp við að það hellist niður smá mjólk í þessu prósessi... 


Og voilá!



Útkoman er hreint út sagt UNAÐUR! Mæli sérstaklega með þessu svona á mánudagsmorgni til að koma sér í gangi... en passið bara að aðhaldspúkinn komist ekki að uppátækinu, hann yrði sennilega ekki hrifinn! ;)

Ég mæli hiklaust með þessu, mun klárlega gera þetta aftur!

Jæja, aftur í b(r)ækurnar...

Hilda

No comments:

Post a Comment