Tuesday, April 15, 2014

Ebay enn og aftur!

Ég og Ebay tökum okkur stundum til og dönsum trylltan og sjóðheitan tangó!

Hér er það nýjasta:

Fékk þennan fyrir 13.69 dollara, samkvæmt genginu í dag eru það 1543 krónur, og að sjálfsögðu enginn sendingarkostnaður... sá mjög svipaða græju í Elko fyrir 12 þúsund... en þetta er semsagt standur fyrir Ipad, snilldargræja sem ég hef elskað frá því ég sá myndina af því á Ebay fyrst!



Ég og dóttirin ákváðum að splæsa í þrjú svona blúndulímbönd, við gátum ekki fengið að velja litina sjálfar heldur kom bara eitthvað random... við fengum semsagt gult, fjólublátt og rautt og borguðum heilar 2.82 dollara fyrir góssið, sem eru þá 317 íslenskar krónur samkvæmt genginu í dag... gjöf en ekki gjald!


Við skötuhjúin skelltum okkur svo á nýja fronta fyrir símana okkar, enda þeir sem við vorum að nota orðnir sjúskaðir og leiðinlegir. Þessir eru s.s. með sílíkoncover sem fer yfir símann sjálfan, og svo kemur plastcover yfir það, svo síminn er ansi vel varinn ;) Fyrir þessa tvo borgaði ég heila 5.18 dollara samanlagt og enginn sendingarkostnaður, sem er þá 583 íslenskar krónur... ég ætla ekki einu sinni að hugsa útí það hvað þetta myndi kosta útí búð hér á landi...


Stundum á ég það til að langa til að vera smá pæja... og í slíkum gír lenti ég óvart í því að skoða Ebay... bauð alveg óvart í þetta armband og vann alveg óvart uppboðið, fékk þessa dásemd fyrir heila 0.99 dollara sem eru þá 111 krónur... og ég þarf að sjálfsögðu ekki að taka fram að það var enginn sendingarkostnaður ;)


Þetta bjútí kom svo í póstkassann núna síðast, ég hef ekki enn fundið tilefni til að vera með það en mæ gad hvað það er gordjöss! Kostaði mig 2.39 dollara, eða heilar 269 krónur, og offkors enginn sendingarkostnaður...


Akkúrat núna er ég svo að bíða í ofvæni eftir þessum tveimur, Skuggi verður án efa mjög ánægður en ég er að vonast til að þetta verði komið fyrir afmælið hans þann 23. apríl ;)
Slaufuna fæ ég fyrir heila 0.90 dollara (101 kr) og bindið fyrir 0.99 dollara (111 kr)

Svo erum við fjölskyldan að fara í brúðkaup í sumar og mig langar að finna eitthvað skemmtilegt hárskraut fyrir okkur mæðgur að því tilefni... og kannski eitthvað smá meir... t.d. kjól á dótturina eða eitthvað álíka... ekki segja manninum mínum samt! ;)

Nú er ég hinsvegar farin í prófalestur, heyrumst í maí! Ég ætla sko ekki að lenda í neinu kennaraverkfalli, það er á hreinu!

2 comments:

  1. Slaufurnar handa Skugga eru klárlega bestar! :)

    ReplyDelete
    Replies
    1. Játs, ég get varla beðið! Hlakka svo til að fá að máta á honum! ;)

      Delete