Tuesday, April 29, 2014

Kisinn minn með bindi!

Ég bara get ekki setið á mér, hann er svo flottur með fína bindið sitt sem kom með póstinum í gær! Ég á svo von á slaufunni mjög fljótlega, jafnvel í dag!
Hann var fyrst með smá grudge yfir þessu, en eftir að hafa leikið í smástund með dótið sitt var hann hættur að spá í því að hann væri enn með það um hálsinn. Þegar ég tók það svo af honum vildi hann fá að leika með það og naga, sem hann fékk að sjálfsögðu ekki! ;)

En eins og ég sagði í síðustu færslu þá keypti ég þetta á ebay fyrir heilar 111 krónur íslenskar, enginn sendingarkostnaður! Algjör snilld! 

En þess má geta að þann 23. apríl átti þessi sjarmör 3 ára afmæli. Hann fékk nokkrar rækjur í tilefni dagsins og var afar sáttur, þrátt fyrir að við værum að standa í prófalestri og því lítið heima (ég flutti lögheimilið á Bókhlöðuna þegar hún var opin... hvað er annars málið með að hafa hana lokaða daginn fyrir fyrsta prófdag HÍ?!? Jújú, það var víst sumardagurinn fyrsti og allt en...)

Semsagt, svona var Skuggi fínn með bindið sitt! Myndavélalookið á hreinu og allt! (Hann kemur alltaf með þennan svip þegar ég reyni að ná myndum af honum, enda er flassið á símanum mínum afskaplega skært og óþægilegt)



En jæja, vika í síðasta prófið... verð að fara að lesa! 
Heyrumst!

No comments:

Post a Comment