Um daginn horfði ég á þátt í sjónvarpinu sem heitir: "Come dine with me". Hann er stórskemmtilegur! 4 aðilar eru valdir í einu og eiga þeir að skiptast á að bjóða hinum til sín í matarboð, að hverju kvöldi loknu gefa hinir gestgjafanum stig og í lok þáttar kemur svo í ljós hver fékk flest stig og þar með unnið keppnina. Þarna koma fyrir allskonar karakterar og margt skemmtilegt sem gerist, og svo eru það kræsingarnar... sjæse!
Í þættinum um daginn var einn aðilinn með key lime pie í eftirrétt og matargestirnir lofsömuðu hana svona líka rosalega... sem dugði til þess að ég varð forvitin og gúgglaði og fann uppskrift og prófaði!
Key lime pie er algengur amerískur eftirréttur en í hann eru notaðar key limes en þær eru minni en venjuleg lime. Key lime hafa stundum fengist í Hagkaup en að þessu sinni notaði ég venjuleg lime, ég reyndi ekki einu sinni að leita að key limes! ;) Í þetta sinn fylgdi ég þessari uppskrift.
Key lime pie... eða nálægt því!
Botn:
1 pk Grahams kex
1/3 bolli sykur
1/3 bolli bráðið smjör
Fylling:
1 matskeið rifinn lime-börkur
1/2 bolli lime safi
2 eggjarauður
1 dós Sweet condensed milk (fékkst áður í Kosti, en nú mega þeir ekki flytja hana inn lengur... en ein á facebookinu mínu reddaði mér með einni dós sem hún átti uppi í skáp hjá sér)
![]() |
Á myndina vantar reyndar smjörið, notaði íslenskt smjör |
Við byrjum á botninum!
Ég tók heilan pakka af Grahams kexi og muldi það niður og lét síðan í blenderinn minn til að mylja það almennilega niður... ég mæli samt ekki með því, blenderinn minn réð ekki nógu vel við verkið en ég skemmdi hann þó ekki! ;)
![]() |
Niðurmulið Grahamskex (eða haustkex eins og ég kalla það vanalegast) |
![]() |
Sykrinum er bætt út í kexmulinginn |
![]() |
Bræddu smjörinu er bætt við |
![]() |
Blöndum þessu saman með gaffli, þetta verður laust í sér en samt rakt... þannig á það að vera! |
![]() |
Ameríkaninn notar sérstaka "pie pan" en ég á ekkert svoleiðis svo ég notaði það næsta sem ég fann í skúffu hjá mér. Ég passaði bara að smyrja það vandlega. |
![]() |
Svo skellum við gúmmelaðinu í formið og dreifum því vandlega um allt, ýtum léttilega á það... |
![]() |
Og voilá! Tilbúið fyrir ofninn! |
Botninn fer svo inn í ofn á 180° þar til hann verður gylltur, samkvæmt uppskriftinni sem ég fylgdi átti það að taka 5 mínútur en hjá mér tók það 10 mínútur, en ég var með þetta neðarlega í ofninum sem kannski hefur eitthvað að segja ;) Botninn er svo látinn kólna á meðan við snúum okkur að fyllingunni!
![]() |
Til að fá heila matskeið af rifnum lime-börk þurfti ég að rífa utan af tveimur lime-ávöxtum |
![]() |
Næst kreistum við lime-in þar til við höfum hálfan bolla af lime-safa, þessi tvö lime sem ég notaði gáfu mér akkúrat hálfan bolla |
![]() |
Hin misþyrmdu lime... |
![]() |
Næst finnum við okkur tvö egg og aðskiljum þau, við þurfum jú bara rauðurnar ;) |
![]() |
Lime-safinn, lime-börkurinn og eggjarauðurnar fara saman í skál og eru hrærð saman... ég ákvað að leita á náðir handþeytarans... |
![]() |
ACTION!!! |
![]() |
Næst er það hin sæta niðursoðna mjólk (sweet condensed milk) sem Kostur virðist ekki mega flytja inn lengur... skil ekki afhverju samt... |
![]() |
Skellum henni í fjörið og höldum áfram að þeyta þartil blandan þykknar... |
![]() |
Þá skellum við henni yfir botninn... úllala, allt að gerast! |
![]() |
Og svona fer hún inn í ofninn aftur, í þetta sinn í ca 15 mínútur eða þar til fyllingin hættir að hristast með þegar maður hreyfir við girnilegheitunum ;) |
![]() |
Svo er eiginlega nauðsynlegt að bera hana fram með rjóma, en það er nú eiginlega algilt með nánast allar kökur! ;) |
Í ljósi þess að þetta er lime pie, er svolítið gefandi að lime bragðið er allsráðandi... en þegar maður er ekki vanur að notast við lime getur manni þótt það neikvætt. Að vísu bætti botninn það mjög upp ásamt rjómanum svo þetta kom mjög skemmtilega á óvart. Botninn var einnig ekkert spes einn og sér en þá kom fyllingin til móts við það, fullkomin tvenna! Við vorum sammála um að þetta væri góð kaka, en næst þegar ég geri hana ætla ég að reyna að gera botninn ennþá blautari því mér fannst hann aðeins þurr fyrir minn smekk ;)
Ég held það sé á hreinu að ég muni gera þessa aftur síðar, þá þegar ég verð búin að redda mér nokkrum dósum af dósamjólkinni. En nú er ég farin að stelast í aðra hressandi sneið, heyrumst! ;)
Hilda
No comments:
Post a Comment