Eitt sinn (í haust sennilega) sagði ég frá því að spennandi verkefni væri í vændum á heimilinu, það var engin lygi! ;) Það var svo reyndar ekki fyrr en í janúar sem ég byrjaði á því og nú í dag lagði minn ástkæri lokahöggið á þetta stærsta... nú er bara smotterí eftir en mig vantar smá hugmyndir til að klára ;)
Við útbjuggum okkar eigin rúmgafl og náttborð, þvílík hamingja að hafa loksins fengið rúmgafl! Þó ekki væri nema málaðan á vegginn, svefnherbergið okkar býður ekki uppá rosalega mikið pláss að maður tími að setja einhvern rúmgaflshlunk þar inn svo eftir þónokkurt gúgglerí og hugmyndafyllerísvinnu kviknaði sú hugmynd að hreinlega mála eitt stykki á vegginn!
 |
Allt að hefjast... klúðraði alveg að taka myndir af herberginu áður en við hófumst handa við að týna allt út úr því... |
 |
Lamparnir voru samt ekki alltaf lafandi svona, þarna var bara verið að sjá hvernig þeir kæmu út... nei, það dugði mér ekki að bera þá bara uppvið vegginn... |
 |
Hér var mín á fullu að mála, rétt mundi eftir myndatökum... |
 |
Fölbleika málningin orðin þurr og þarna er búið að setja málningateip fyrir málninguna fyrir rúmgaflinn... allt að gerast! Ýkt spennandi! |
 |
Burgundy rauður var það heillin! Afgangs litur frá því við máluðum herbergi dótturinnar |
 |
Það er bara eitthvað við það að taka málningateipið af... nett adrenalínkikk yfir því hvort eitthvað hafi klúðrast! |
 |
Og þá er komið að næsta skrefi... ramma þetta inn! |
 |
Við keyptum voða plein hurðakarma í Byko og máluðum þá súkkulaðibrúna, söguðum þá til og púsluðum þeim á vegginn! Fáránlega auðvelt og kemur svo hrikalega skemmtilega út! |
 |
Hvað skyldi minn ástkæri vera nú að gera??? |
 |
Við keyptum tvær litlar hillur í Rúmfatalagernum, hræódýrar og tilvaldar í þetta verkefni! Máluðum þær einnig súkkulaðibrúnar og festum upp sitthvorumegin við rúmgaflinn og þá eru komin þessi fínu náttborð! Þau safna ekki ryki undir sig og taka algjörlega ekkert pláss! |
 |
Hér er mitt náttborð, þá má jú ekki skilja útundan og sýna bara annað þeirra ;) |
Nú í dag var svo minn ástkæri að klára að festa upp vegglampana. Hann var búinn að því fyrir einhverju síðan en það klúðraðist eitthvað sem olli því að þeir vildu bara fá að hanga líkt og þeir gerðu á fyrstu myndinni. En nú er búið að laga það vandamál.
Voilá kæru lesendur!
Svefnherbergið okkar!
 |
Eins og þið sjáið þá er hægt að snúa lömpunum eftir hentisemi, hér sneri ég þeim svo þeir lýsa á "veggjatattúið" eins og dóttirin orðar það ;) |
 |
Þennan fékk ég á Ebay fyrir heilar 1500 krónur hingað heim kominn! Enginn sendingarkostnaður eða neitt! Áður en ég pantaði límmiðann hafði ég samband við fyrirtæki hér á landi og sendi þeim mynd af límmiðanum og spurði hvað það kostaði að fá slíkann í sömu stærð og allt, þeir sögðu 5000 kr svo ég þakkaði fyrir og sagðist ætla hugsa málið... hugsaði málið í þann tíma sem það tók að panta límmiðann, staðfesta pöntunina og greiða fyrir hana... s.s. ekki langan tíma! |
Það er eitt sem við hjúin getum ekki ákveðið... hvað eigum við að setja á vegginn vinstra megin við rúmið? Við höfum velt fyrir okkur að setja stóra mynd eða jafnvel tvær litlar hillur með einhverjum skemmtilegum aukahlutum... tough choices! ;)
Svo kæru lesendur, hafið þið einhverjar hugmyndir?
Bestu kveðjur,
Hilda
Snilld!! Helvíti kemur þetta vel út hjá ykkur!
ReplyDelete