Jæja, it´s that time again! ;)
Janúar var óskaplega rólegur til að byrja með, en svo jókst álagið sem hélst fram í maí ;) Dóttirin byrjaði að æfa frjálsar og körfubolta, ásamt því að halda áfram í dansinum. Reyndar fengum við mjög skemmtilegar fréttir í janúar, fékk skilaboð frá systir minni um trúlofun og fyrirhugað brúðkaup, ásamt því að vera beðin um að aðstoða við hugmyndavinnu og almennar afskiptingar! ;)
Febrúar var lítið annað en skipulag og annríki, heimalærdómur og fá dótturina til að sinna einnig sínu heimanámi. Gekk á endanum... ;)
![]() |
Sumir reyndu að leggjast á sem flestar bækur í einu... |
Mars gekk svo í garð líkt og hver annar mánuður... nema fregnir fóru að birtast um líkur á verkfalli háskólakennara. Hugurinn fór að leita til vorprófanna en þó með von um að málin myndu nú leysast sem fyrst. Á meðan maður er að stússast í þessu blessaða háskólanámi þykir víst til tíðinda að skella sér í klippingu... í öllu annríkinu ákvað ég að skella mér á ónefnda stofu sem hefur þann háttinn á að ekki þarf að panta tíma fyrirfram heldur bara mæta og sjá hvort það sé laust. Svo til að gera langa sögu stutta... þá endaði ég með gult hár! Dótturinni fannst ég svakalega flott, með svona gult hár eins og prinsessurnar í teiknimyndunum! ;)
Sem betur fer fékk ég tíma á stofunni "minni" með stuttum fyrirvara svo ég þurfti ekki að vera svona lengi.
![]() |
Það er ekki fræðilegur möguleiki að vera eðlilegur með svona hár! |
Við skelltum okkur í bústað eina helgina í mars, til að jafna okkur eftir þetta hárfíaskó (ókei reyndar ekki en það hljómar miklu dramatískara svona!) Það var mjög kærkomið að komast aðeins út fyrir bæjarmörkin og hlaða batteríin, við þurftum á þessu að halda öll þrjú! Það vildi reyndar ekki betur en svo fyrstu nóttina að ég vaknaði við bölvuð læti úti á pallinum, bank á útihurðina og gluggana og svakalegt þramm fram og til baka. Þegar ég fór fram sá ég einhvern gæja vera að bisast við grillið á pallinum og tók ekki eftir að einhver hafði vaknað við lætin í sér. Eftir að ég bankaði harkalega í gluggana flaug hann (bókstaflega) í burtu og urðum við ekki hans vör aftur þessa helgina. Augljóst var þó að hann hafði verið að reyna að ná gaskútnum af grillinu og álitum við Stefán að hann hefði nú sennilegast ekki verið í þeim hugleiðingum að fara að grilla klukkan þrjú um nótt!
Aprílmánuður... já... ritgerðarskrif og lærdómur ásamt undirbúningi fyrir vorprófin. Dansskólinn hjá dótturinni hélt sýningu og stóð skottan mín sig svo vel! Ótrúlegt hvað þessi dásamlega persóna getur gert mig svo stolta og væmna :)
![]() |
Frá danssýningunni... myndin er fengin að láni af facebook-síðu Dansskóla Jóns Péturs og Köru ;) |
Um miðjan aprílmánuð birtust þær fregnir að fyrirhuguðu verkfalli kennara yrði frestað, sem gladdi margan háskólastúdentinn og var ekki laust við að manni langaði að taka nokkur spor á bókhlöðunni ;)
Páskafríið einkenndist af prófalærdómi að mestu, dóttirin söng að vísu með kórnum sínum í Hallgrímskirkju ásamt Lögreglukórnum og fleirum. Henni fannst það nú ekki leiðinlegt ;)
Maímánuður kom svo eins og dagatalið gerir ráð fyrir. Ég gerði lítið annað en að lesa en fór í síðasta lokaprófið mitt 6. maí, þann sama dag gladdist ég því að Eurovision-tíðin hófst og var fyrsta keppniskvöldið þá... facebook-vinir mínir fengu aldeilis að kenna á því en ég missti mig kannski "aðeins" í lýsingum á keppendum og lögunum þeirra ;) Eins og allir vita þá komst Ísland áfram uppúr forkeppninni... og auðvitað í síðasta umslaginu líkt og áður hefur komið fyrir... já, ég ELSKA júróvisjón, díl við it! ;)
Það fór víst heldur ekki framhjá neinum að Austurríki vann keppnina með sína skeggjuðu Conchitu ;)
En það var líka fleira sem gerðist í maí mánuði, systir mín var gæsuð! ;)
Förinni var heitið norður á Akureyri í sprell, bjórkynningu, kósýheit og bústað -ekkert klikkaði! Nema jú... þurftum að bíða í nokkra tíma eftir lyklunum að bústaðnum... því var nú reddað með bíltúr um sveitina og súrum húmor með vídjókameru að vopni! ;)
![]() |
Ég og gæsin fagra ;) |
Júní var svo ljúfur og góður, ekki spillti veðrið fyrir heldur ;) Við mæðgur nutum sólarinnar á svölunum eða úti í garði, ég með prjónana og hún með vinkonu sinni... alveg eins og sumarfrí eiga að vera! ;)
Júlí var með sama sniði... stundum sól og stundum ekki... típískt íslenskt sumar bara ;) Maðurinn minn varð jú 31. árs þann 4. júlí, Bandaríkjamenn eru voða duglegir við að halda uppá fæðingu hans... eða eitthvað svoleiðis ;)
Ágústmánuður hófst svo á því að fjölskyldan hélt austur á land, nánar tiltekið (heim) á Reyðarfjörð. Systir mín gekk í hnappelduna þann 9. ágúst og dóttir mín fékk það hlutverk að vera önnur blómastúlkan í athöfninni... hún ákvað að taka samningaleiðina á þetta og fékk í staðinn nammipoka og Pepsi sem brúðurin borgaði með stórt bros (og hlátur) á vör ;)
![]() |
Við fjölskyldan í brúðkaupinu, stundum erum við voða dönnuð og fín ;) |
![]() |
Ég með systkinum mínum og móður... ég á ekki langt að sækja fíflaskapinn... |
Í ágúst byrjuðu svo feðginin aftur í skólunum eftir sumarfrí, það var alveg orðið kærkomið að komast aftur í rútínu. Dóttirin byrjaði í 2. bekk, finnst eins og hún hafi byrjað í leikskóla í fyrradag! Tíminn líður stundum of hratt fyrir minn smekk! ;)
September gekk svo í garð og lauk mínu sumarfríi þar með... ég hófst handa við að skipuleggja jólagjafir og fór að skoða og panta gjafir á Ebay, aldrei slæmt að vera snemma í hlutunum ;)
Í annríkinu kom október á sinn stað... þann sautjánda varð dóttirin 7 ára og voru haldnar tvær veislur henni til heiðurs. Í þeirri fyrri voru fjölskyldan og vinir boðin velkomin í súpuveislu sem var vel tekið, og í þeirri síðari voru það bekkjarsystur hennar sem mættu í Frozen-afmæli sem heppnaðist frábærlega! ;)
![]() |
Nóvember var afskaplega annasamur mánuður. Hann einkenndist af miklu heimanámi og verkefnavinnu, maðurinn minn fór í lokaprófin sín og á meðan sá ég um heimilið og allt annað sem því tilheyrir. Ég átti svo afmæli 24. nóvember og varð 29 ára, það hvarf reyndar fyrir prófalestri. Álagið var mikið auk þess sem það styttist óheyrilega í jólaprófin hjá mér. Stressið var byrjað að láta á sér kræla enda lenti ég í því að vera með tvö erfið próf 11. og 12. desember. Ég íhugaði reyndar að taka annað þeirra sem sjúkrapróf í janúar en ákvað að taka á stóra mínum og tækla þetta bara. Stressið var gífurlegt, álagið ótæpilegt og ég fann fyrir miklum söknuði til dóttur minnar. Ég hitti hana jú á hverjum degi og við spjölluðum saman, en ég saknaði þess að geta ekki dúllað mér með henni, lesa með henni í heimanáminu og geta ekki farið að hugsa um jólin með henni fyrr en ég væri búin í prófunum.
Þann 1. desember bað ég manninn minn um að vinsamlegast skella upp jólaseríunum í gluggana svo ég myndi ekki gera það, að sjálfsögðu gerði þessi elska það enda er hann bestur! ;*
Eins og fyrr sagði lauk ég prófum 12. desember. Það fyrsta sem ég gerði var að labba skjálfandi út úr prófinu, sjokkið við að þetta væri búið var að brjótast út. Gleðin yfir því að þurfa ekki að setjast niður og lesa var gífurleg! Ég vona að ég þurfi ekki að ganga í gegnum svona erfiða önn aftur en mistökin sem ég gerði var að taka tvo erfiða kúrsa á sama tíma, en ég lifði þetta af!
Jólaundirbúningurinn var dásamlegur! Kósítímar með dótturinni og vinkonu hennar, manninum mínum og kisanum sem virtist vera voða glaður með alla athyglina sem hann fékk loksins! ;)
![]() |
Gerði heitt súkkulaði í kaffitímanum einn desemberdaginn ;) |
![]() |
Við mæðgur duttum í svakalegan perlu-gír fyrir jólin og perluðum heil ósköp! |
![]() |
Partur af því sem var galdrað fram ;) |
Aðfangadagur var dásamlegur. Við keyrðum með gjafir til fjölskyldumeðlima og vina og óskuðum öllum gleðilegra jóla og héldum svo jólin hér heima í kósýheitum.
![]() |
Myndin sem ég notaði til að senda facebook-jólakveðjuna þetta árið, við höfðum ekki tíma til að gera jólakort þetta árið eina ferðina enn... ;) |
Á jóladag fórum við svo til systur minnar í Keflavík, eins og ég hef minnst á hér áður. Áður en við héldum heim á leið fórum við í smá bíltúr um Keflavík og skoðuðum jólahúsin, enda íbúar þar sumir mjög duglegir við skreytingar ;)
![]() |
Jólahúsið í Keflavík árið 2014 |
Áramótunum var svo varið heima hjá tengdaforeldrum mínum í faðmi stórfjölskyldunnar. Kalkúnn og tilheyrandi var á boðstólum og skemmtu allir sér konunglega. Dóttirin ákvað að nú væri hún sko ekki hrædd við flugelda og var á tímapunkti staðráðin í því að vilja fara út í garð þar sem allir voru að skjóta upp, móðirin var nú ekki sammála og fékk hana á endanum til að koma bara með út á svalir. Það vill svo heppilega til að þessi móðir þekkir sína dóttur því rétt fyrir miðnætti var mín dama alveg komin með nóg af þessum látum og vildi ekki sjá þetta meir, en hún fékk heilmikil hrós fyrir að hafa þorað að vera úti á svölum og haldið á stjörnuljósum! Stórt þrekvirki þar á ferð! Því miður klikkaði myndavélin mín og vildi ekki leyfa mér að taka myndir af því.
![]() |
Við hjúin vorum alveg til í þessi áramót ;) |
![]() |
Ég og mín elskulega tengdamóðir, hún og maðurinn minn stóðu sig frábærlega við eldamennskuna! |
![]() |
Við mæðgur klikkuðum ekki á naglalakkinu! ;) |
![]() |
Ég tímdi ekki að kaupa rándýra grímu handa dótturinni svo við föndruðum okkar eigin, spöruðum hellings pening og skemmtum okkur vel við að finna hluti í grímuna ;) |
Nú er ég að hefjast handa við að skipuleggja vorönnina sem senn fer að ganga í garð. Við skruppum einmitt á bókasafnið í vikunni og náði ég mér í nokkrar bækur sem ég þarf að lesa á önninni, gott að vera skipulagður og byrja snemma ;)
Að lokum vil ég þakka ykkur kærlega fyrir lesturinn á blogginu á árinu, þetta ómerkilega röfl í mér er þó eitthvað sem ég hef sjálf gaman að og það er tilgangurinn... svo er reyndar aldrei verra að vita að einhverjir nenni að lesa stundum ;)
Ég vona að allir hafi farið heilir í gegnum áramótin og að árið 2015 verði árið okkar. Þetta er jú árið sem felur í sér fyrsta tug okkar hjúa auk þess sem ég sjálf mun verða þrítug! Jæks! Best að fara að plana! ;)
![]() |
Gleðilegt nýtt ár! Vona að nýja árið fari vel í alla :) |
Með áramótakveðjum,
Monica... ég meina, Hilda! ;)
No comments:
Post a Comment