Þið afsakið bloggleysið síðasta mánuðinn... ég efast reyndar um að nokkur manneskja hafi tekið eftir því svo... ;)
Um helgina skellti ég mér í Kolaportið ásamt tengdamóður minni í þeirri von að ná að losa okkur við eitthvað af þessu dóti sem maður heldur alltaf í án þess að hafa nokkra ástæðu til, það tókst að einhverju leyti ;)
Nokkrir punktar sem ég held að sé gott að hafa í huga:
(Ath! Við vorum að þessu í fyrsta skipti auk þess sem svona lagað getur verið misjafnt eftir helgum!)
- Passaðu að hafa nóg af skiptimynt! Bæði seðla og klink!
- Fæstir eru til í að borga uppsett verð og prútta eins mikið og hægt er að komast upp með
- Fyrsta helgin í mánuði er besti tíminn, skilst einnig að það sé meira að gera á laugardögum heldur en sunnudögum (ath. ég hef ekki reynslu af því sjálf enda vorum við núna aðra helgina í mánuðinum og einungis á laugardegi, þetta hef ég þó heyrt útundan mér)
- Reyndar er ódýrara að leigja bás yfir heila helgi heldur en stakan dag, en þá myndi ég halda að fyrsta helgin í mánuðinum væri best fyrir svoleiðis
- Krem og snyrtivörur sem þú notar ekki lengur eru á við gull og gersemar! Garanteruð sala á svoleiðis! Þær voru það sem dró fólk að básnum okkar, sama hvort það keypti eitthvað af okkur eða ekki.
- Við seldum ágætlega af skóm en sennilega vegna þess að við vorum með stóóóóran haug af þeim og ákváðum að selja parið fyrir 400 krónur (og í lokin fyrir 200 krónur)... ég var aðallega með barnaskó og þá voru það spari- og kuldaskór sem voru að fara. Það var varla litið við strigaskónum og stígvélunum (en ég hugsa að slíkt fari betur þegar nær dregur sumri).
- Nokkrir spurðu hvort við værum með skartgripi til sölu en við vorum ekki með neitt slíkt, svo það er spurning hvort það sé eitthvað sem er að seljast ágætlega
- Prjónavörur eru vinsælar hjá fólki til að skoða og káfa á, kannski þá sérstaklega hjá öðrum prjónakonum sem vilja vita hvað þú leggur mikið á vörurnar! ;)
- Við vorum með mikið af fötum. Það fór ekki mikið af þeim og ekki margir sem komu til að skoða þau. Það var í raun ekki fyrr en ca einn og hálfur tími var eftir af opnunartímanum og við settum upp miða með: "3 fyrir 1000 kr" á flíkum á slá að fólk kom og skoðaði, þó fór bróðurparturinn af flíkunum aftur með okkur heim (það er að segja það sem fór ekki í Rauða Kross-gáminn sem staddur er fyrir utan Kolaportið). Við lentum reyndar í því að það var ekki fjölmennt í Kolaportinu þennan dag svo ég hugsa að föt séu nú að seljast mun betur á góðum dögum, að minnsta kosti hef ég heyrt um slíkt ;)
- Við vorum ekki með mikið af leikföngum en þau fóru öll... reyndar kom ungur drengur í fylgd ömmu sinnar að skoða akkúrat á þeirri stundu þegar ég var með leikfang í höndunum og var eitthvað að færa það til. Hann langaði sssvvooo að fá að skoða það svo ég leyfði honum það og endaði á að leika með það með honum við mikla kátínu hans. Þegar amman spurði svo hvað ég ætlaði að selja leikfangið á uppgötvaði ég mér til mikillar skelfingar hvað ég hafði eiginlega gert svo ég sagði að það myndi bara fara á 50 kr (þó svo að amman endaði á að borga 100 kr því 50 kallarnir voru búnir hjá okkur, hún sagðist samt vera alveg sátt við að borga hundraðkallinn)... ég semsagt óafvitandi notaði saklaust barn til að láta ömmu þess kaupa leikfang af okkur! Drengurinn varð reyndar svo heillaður af leikfanginu að hann vildi ekki láta það af hendi svo amman hefur ekki séð neina leið úr aðstæðunum nema að kaupa þetta handa honum... já, ég hef greinilega lært djöfullegar aðferðir sölumennskunnar í gegnum móðurhlutverkið! Make a child happy by letting their guardians pay! Sú hlýtur að hafa hugsað mér þegjandi þörfina...
![]() |
Sendi systrum mínum þessa mynd fljótlega eftir opnun, ein systir mín sagði að þetta liti bara út eins og alvöru Kolaportsbás! ;) |
Þrátt fyrir fámennið og allt prúttið (sem er eitthvað sem ég hafði ekki kynnst áður en var fljót að komast upp á lagið með... held ég) komum við þó út í plús sem var jú takmarkið (rétt eins og hjá öllum sem fara þangað að selja). Við tengdamæðgur sammæltumst um að jafnvel endurtaka þetta síðar og vonandi ná enn betri sölu þá, þetta er þó happaglappa dæmi og það ber að hafa það í huga ;)
Ég mæli með því að fólk skelli sér í Kolaportið til að losa sig við dót og fá smá pening fyrir það, þetta er skemmtileg reynsla að mínu mati og alltaf gaman að prófa eitthvað nýtt ;)
Talandi um eitthvað nýtt, ég er að leita að vinnu til að sinna með skólanum og í sumar -ef þið vitið um eitthvað má hnippa í mig ;)
Heyrumst síðar!
Hilda
No comments:
Post a Comment