Sunday, February 22, 2015

Konudagskósý!

Það var víst eitthvað í dag sem kallast ,,konudagur"... minn betri helmingur leyfði mér að fara snemma á fætur og horfa á teiknimyndir með dótturinni á meðan hann svaf til hádegis, hann eldaði svo dýrindis lambabóg í kvöldmatinn og leyfði mér að losna við sig í kvöld (endalaus verkefnavinna á þessu heimili) svo ég hef það kósý með kettinum ;)

Í tilefni þess að mér leiðist og er með sjónvarpið stillt á BBC Lifestyle ætla ég að deila með ykkur part af kósýheitunum ;)

Þátturinn sem ég er að horfa á... ég veit ekki hvað hann heitir samt...

Þessi handáburður er uppáhalds í augnablikinu, voða góð kókoslykt af honum (döh!) Ég ber hann á hendurnar rétt áður en ég fer að sofa, sérstaklega þegar þær eru þurrar (gerist helst í veðrabreytingum), morguninn eftir eru þær mjúkar og djúsí ;) Þessi fæst t.d. í Hagkaup og er voða ódýr, man ekki nákvæmlega hvað hann kostar mikið en ég lofa að það er ekki há tala! ;)

Sumir reykja, ég nota þessa! Fíknin hófst fyrir mööööörgum árum með Labello, eftir að ég hætti að nota þá tegund flakkaði ég á milli annarra tegunda þartil ég prófaði þessa... í augnablikinu á ég þrjú stykki á nauðsynlegum stöðum... þyrfti helst tvo í viðbót en er of meðvituð um þessa fíkn mína til að láta verða af því að bæta þeim við... þessir fást allsstaðar! Of hentugt að grípa í einn (eða tvo) við afgreiðsluborðið í Bónus til dæmis...

Það er ekki hægt að hafa kósýkvöld án kósý lýsingar! Myndin er viljandi svona dökk til að reyna að deila stemmningunni sem þessi gefur. Þetta eru s.s tertudiskur með loki úr Ikea, blómasería (batterís) úr Byko og könglar sem við mæðgur týndum í haust ;)

Þetta skilti er mitt uppáhald! Ég pantaði það í nóvember hjá Albínó design á Facebook og sagði manninum mínum að hann gæti gefið mér það í afmælisgjöf, hann var fljótur að samþykkja það þessi elska ;)

Jæja, Óskarinn er að byrja og ég ætla að sjá allavega byrjunina... fínasti endir á konudegi ;)

Heyrumst!



No comments:

Post a Comment