Saturday, March 21, 2015

Smá laugardags...

Í dag er laugardagur, hinn heilagi nammidagur...

Ég bauð stelpunum í prjónahópnum mínum til mín í vikunni, skömmu áður en þær komu uppgötvaði ég mér til mikillar skelfingar að ég hafði gleymt að gera ráð fyrir því að bjóða uppá eitthvað... en hvað ég er góður gestgjafi!

En þetta varð ekkert mál því allt í einu mundi ég eftir Bounty-bitunum sem ég bloggaði um hér, herlegheitin voru tilbúin áður en stelpurnar komu og ég veit ekki betur en að þær hafi verið hæstánægðar. Upp úr krafsinu kom einnig að ein úr hópnum okkar á barn sem er með ofnæmi fyrir aaaansi mörgum atriðum en má fá svona! Þið trúið ekki hvað ég varð glöð með að heyra það! :D

Að þessu sinni dreifði ég kókos yfir bitana áður en súkkulaðið harðnaði, það er geeeeðveikt!

Hér eru fleiri hugmyndir um hvað hægt er að gera á laugardegi sem þessum, séð frá hlið sælkerans! ;)

Um daginn bakaði ég skúffuköku með dóttur minni, það var hriiikalega skemmtilegt (og bragðgott!)
Ef planið er að glápa á sjónvarpið mæli ég með að poppa, jafnvel ekki verra að hafa eitthvað gott að drekka við höndina ;)
Þessi er að vísu síðan um jólin, en er samt alveg jafn vinsælt fyrir því ;) Snakk, ídýfur og einn kaldur (eða tveir!) Önnur dýfan er hituð ostasósa en hin er salsasósa og ostasósa hitað saman, sjúúúúklega gott! Mæli hiklaust með þessu!
Ef planið er hinsvegar að vera örlítið dannaðri á því mæli ég með hvítu í glasi og jarðarber á kantinum, alls ekki verra ef þau eru súkkulaðihúðuð! Þetta hefur smá klassa yfir sér, jafnvel þótt kona sé ein heima og er búin að plana að horfa ein á Clueless eða eitthvað álíka.... 


Nú er planið hinsvegar að skunda út með litlu fjölskylduna og eyða smá tíma með þeim áður en ég held áfram að laga til ritgerð sem ég á að skila á morgun. Í það minnsta held ég að ég eigi mann og barn, þau eru einhversstaðar þarna í minningunni...

Njótið laugardagins!

Hilda

No comments:

Post a Comment