Sunday, March 29, 2015

Stökkir kjúklinganaggar

Núna í kvöld hafði ég kjúklinganagga í kvöldmatinn. Þeir eru svo góðir!
Ég fékk veður af uppskriftinni hjá vinkonu minni, hún sagðist gera svona af og til og vekti mikla lukku... svo auðvitað varð ég að prófa!
Ég varð ekki svikin!
7 ára dóttir mín er stórhrifin... einnig maðurinn minn sem er "aðeins" eldri en 7 ára...


Það sem þarf:
Kjúklingabringur -skornar í litla bita
2 bollar mulið kornfleks (ég prófaði einu sinni að nota Euroshopper kornfleksið en fannst það ekki vera eins bragðgott og Kellog´s, fannst jafnvel vera smá pappabragð svo ég mæli ekki með því að nota það)
Hálfur bolli kókosmjöl
Hálf teskeið mulið engifer (til að hafa bitana sterkari skal bæta við meira)
Hálf teskeið salt
1/4 teskeið pipar
1 stórt egg
1 matskeið mjólk

Aðferð:
Kveikið á ofninum og setjið á 190°, takið einnig fram bökunarplötu og setjið bökunarpappír á hana.
Notið tvær grunnar skálar, þið sjáið á myndinni að ég nota þessi eldföstu mót úr Ikea en ég á allar stærðirnar í þessari línu og er gjörsamlega heilluð! Verðmiðinn á þeim er líka dásamlegur! Algjört win-win situation þarna!
Í aðra skálina fara kornfleksið, kókosmjölið, engiferið, saltið og piparinn og passið að blanda því vel saman.
Í hina skálina fara eggið og mjólkin, hrærið vel saman.

Þessi eldföstu mót gera allt einhvernveginn svo miklu fallegra!
Nú er að koma að þessu!
Næst eru kjúklingabitarnir teknir og þeim velt uppúr eggjablöndunni. Að því loknu er þeim velt uppúr kornfleksblöndunni (passið að ýta vel á kornfleksið svo það festist vel við kjúklinginn) og svo er herlegheitunum komið haganlega fyrir á bökunarplötunni.






Þetta er svo ótrúlega girnilegt þegar búið er að raða á alla plötuna! But the best is yet to come! ;)
Þá er komið að því að skutla plötunni í ofninn og hafa þetta í ca 12-14 mínútur (ég hafði þetta reyndar í 15 mínútur, hafið í huga að ofnar geta verið mismunandi svo það er betra að fylgjast vel með)

Ég reyni að telja mér trú um að það flýti fyrir eldamennskunni að taka mynd af matnum á meðan hann er í ofninum...
Komið úr ofninum! Ég var reynar orðin aðeins of svöng til að vera eitthvað að vanda mig við myndatökur á þessu stigi málsins...

Rétt náði að smella þessari af áður en við fjölskyldan réðumst á matinn.
Maðurinn minn bjó til "hefðbundna" brúna sósu til að hafa með þessu, ég hef ekki hugmynd um hvað hann lét nákvæmlega í hana en ef áhugi er fyrir því get ég eflaust veitt það uppúr honum ;)
Á myndinni sést einnig glitta í rauða sósu... það er sósa sem dóttirin bjó til. Hún inniheldur tómatsósu og jarðarberjasultu... að hennar sögn er hún dásamleg ;)
Salat hentar með nánast öllum mat og pik-nik strá einnig, svo voru gular baunir hitaðar upp með smjöri... við vorum svo sannarlega ekki í neinu aðhaldi að þessu sinni, svo mikið er víst!

Verði ykkur að góðu!
Hilda

No comments:

Post a Comment