Nei því miður, ég er ekki stödd í einhverjum kósý sumarbústað með heitum potti og grillandi humar með tilheyrandi hvítvínssötri... í staðinn er ég heima að skrifa ritgerðir, lesa bækur og þamba kaffi eins og ég fái borgað fyrir það! Ég er einnig að fara að byrja á lokaverkefni fyrir eitt af námskeiðunum sem ég er í... já, það er fjör hér í Breiðholtinu!
Það er á svona stundum sem hugurinn reikar til útlanda, sérstaklega þegar snjókornin láta á sér bera...
Já elskurnar, mig langar að skella mér í verslunarferð til Glasgow! En það er nú ekkert nýtt...
 |
Já, það væri ekki leiðinlegt að trítla þarna inn... ég er allavega viss um það! Aumingja Visa... |
Mig langar líka að flatmaga á sólarströnd, vera eins og latur flóðhestur og aðeins reisa mig við til að taka við drykkjum... ahh... dásemd...
 |
Þessi er bara alveg eins og ég! Aaaaaalveg eins! |
Það væri heldur ekki leiðinlegt að fara út í þeim tilgangi að skoða fallegar byggingar... (ekki verra ef viðkomandi byggingar væru ódýrar búðir en látum það liggja milli hluta...)
 |
En sú fegurð! |
 |
Þessi gluggi... ég veit ekki hvaða orð skuli nota! |
 |
Vá... |
 |
Dásamlegt! |
 |
Allar Íslendingasögurnar passa pottþétt í hillurnar þarna! |
 |
Ég gæti alveg hugsað mér að gifta mig í þessari kirkju... |
 |
Samkvæmt gúgglinu er þetta í Taílandi... ég þangað! |
 |
Úllala... Honey, I´m home! |
 |
Afhverju er Bókhlaðan ekki svona?? Ég bara spyr... |
 |
Ég gæti sætt mig við að eiga heima þarna líka... fæ einhvern annan til að sjá um þrifin að sjálfsögðu! |
Jæja, ég skal ekki þreyta ykkur meira með gúggluðum myndum. Þið bara njótið þess að vera í bústað með bjór, áfengi, snakk, nammi, páskaegg og hálf nakin í heitu pottunum. Mér er alveg sama, ég er alls ekki öfundsjúk! Mig langar ekkert að fara í heitan pott! Alls ekki!
Ég er farin að knúsa bækurnar!
Ég vona að þið kafnið á málsháttunum! (Samt ekki!)
"Gleðikona í háska!"
Hilda
No comments:
Post a Comment