Thursday, April 23, 2015

Ebay reddar fermingargjöfum!

Jebbs... við fórum í tvær fermingarveislur fyrir skömmu... og já, Ebay hjálpaði mögulega til í gjafakaupum...

Fyrri veislan var hjá bróður mannsins míns, Ebay skipti sér ekkert af því þar sem við gáfum litla kútnum gjafakort í Elko. Ég veit að það er eitthvað sem hann kemur pottþétt til með að nota... hann sagði mér einmitt núna um daginn að hann hefði farið þangað eftir ferminguna, að sjálfsögðu gleymdi hann að nota kortið... ;)

Veisla númer tvö var hjá frænku mannsins míns. Ebay kom þar að góðum notum...

Eftir að hafa ráðfært mig við vinkonu mína (hún er skohh förðunarfræðingur! *grípandannáloftiafaðdáun*) endaði ég á að velja þetta hérna:

10 burstar. Fyrir þetta sett borgaði ég 15.53 dollara, sem eru þá 2115 krónur. Ég slapp við tollinn svo þetta varð endanlegur kostnaður... hvað ætli svona myndi kosta útí búð??

Til að hafa burstana í einhverju ákvað ég að panta svona líka:

Settið smellpassaði í svo þetta var bara snilld! Fyrir þetta krútt borgaði ég heila 1.21 dollara... sem eru 164 krónur... ég legg ekki meira á ykkur...

Ég vona að þessar gjafir hafi fallið í kramið... ég er allavega að íhuga alvarlega að splæsa í svona burstasett fyrir sjálfa mig. Verst að ég kann ekki að nota þetta allt saman... þá er nú heppilegt að ég er á leið á snyrtifræðinámskeið fljótlega... kannski er mér viðbjargandi! ;)

Annars er ég á lokasprettinum í skólaverkefnum... var að skila heimaprófi af mér áðan svo núna eru bara stór ritgerð og eitt stykki lokaverkefni eftir... wish me luck!

Og já, það er víst sumardagurinn fyrsti í dag... gleðilegt sumar!

Þar til næst!
Hilda

No comments:

Post a Comment