,,... þegar mér líður best..."
Ég ætla samt ekki að rifja upp lög með Bubba að þessu sinni, heldur er ég bara að reyna að halda lífi í þessu bloggi með því að skrifa smá um það sem á daga mína hefur drifið undanfarið...
Nýjustu fréttir:
ÉG ER KOMIN Í SUMARFRÍ!
![]() |
Sé þig aftur í haust elsku háskóli! |
Já, ég er búin með mitt annað ár í háskólanámi, hver hefði trúað því?!?
Um daginn var líka sumardagurinn fyrsti, dóttir mín fékk strigaskó og sólgleraugu í sumargjöf.
![]() |
Fékk þessa fyrir 2000 kall í skómarkaði í Smáratorgi... hér sést hversu mikið fótamódel dóttir mín er ;) |
![]() |
Ég fékk þessi sólgleraugu á mínu ástkæra Ebay fyrir 1.46 dollara... sem eru þá ca 193 krónur... ef þið viljið linkinn á þau á Ebay skuluð þið bara hnippa í mig ;) |
Dóttir mín er búin að vera að æfa dans núna í um 2 ár og samkvæmt henni ætlar hún aldrei að hætta ;) Dansskólinn hennar fór í sumarfrí um daginn en áður en hún sagði skilið við hann fyrir sumarið tók hún þátt í að sýna dans á Íslandsmeistaramóti í dönsum í Laugardalshöll fyrir stuttu. Þarna fékk hún smá bragð af því að dansa úti á gólfi í svona stórum sal og með mun fleiri pör á gólfinu heldur en hún hefur vanist, að auki fékk hún smá æfingu í að dansa það sem hún hefur lært því ekki voru öll pörin með sömu dansrútínuna svo það þýddi lítið að ætla að horfa á næsta par og herma ;)
![]() |
Allir krakkarnir voru svo duglegir og stóðu sig með prýði! |
![]() |
Eftir að þau luku við að sýna dansana sína fékk hvert og eitt þeirra verðlaunapening... ég held að ég þurfi ekki að segja frá því hversu stolt mín dama varð, myndin segir allt sem segja þarf ;) |
Við skruppum í dagsferð uppí sveit um síðustu helgi. Undanfarin ár höfum við verið að nostra við trjáplöntur og runna og slíkt, í ljós kom að eitt tréð er orðið jafnhátt dótturinni sem okkur fannst mjög skemmtilegt að sjá ;)
![]() |
Skottan var ekki beint til í að brosa fyrir myndatökuóðu móður sína... |
![]() |
Við skruppum í bíltúr og rákumst á þessar rólur, virkilega skemmtileg hugmynd sem ég gæti hugsað mér að herma eftir. |
Við erum líka búin að vera heima hjá okkur, ekki ímynda ykkur annað!
![]() |
Ég tók mig til og þreif svalirnar eftir veturinn auk þess að koma sumarhúsgögnunum fyrir... nú er hægt að tana! |
![]() |
Áður en ég fór í sumarfrí þurfti ég að klára ritgerð, við mæðgur lærðum saman á svölunum... ég að punkta hjá mér fyrir ritgerð og hún að búa til sögu... hún var ekki til í að skipta... |
![]() |
Innikötturinn Skuggi fylgist spenntur með öllu sem gerist úti, líka kvöldsólinni. |
![]() |
Maðurinn minn sat við gluggann og hnýtti flugur eitt kvöldið, Skuggi varð mjög áhugasamur um fjaðrirnar sem hann var að nota í einhverja fluguna og vildi endilega hjálpa til ;) |
Annars mun ég eyða sumrinu mínu að mestu í vinnunni, þess fyrir utan ætla ég að njóta þess að eiga góðar stundir með feðginunum mínum. Maðurinn minn er mikið fjarverandi þessa dagana en hann er á lokametrunum í skólanum. Dóttirin kann vel að meta það þegar hann getur verið með okkur og voru þau tvö svona þegar við löbbuðum frá bílnum í bílageymslunni um daginn... já, þessi móðir bráðnaði í döðlur!
![]() |
Annars á ég von á amk einni Ebay-sendingu á næstu dögum... og ég er búin að vera að skoða allskonar hugmyndir sem þarf að koma í framkvæmd í eldhúsinu... þar að auki er ég komin með DIY-verkefni í hendurnar! Það er sko allt að gerast... sjáum til hvort ég nái að klára eitthvað af þessu áður en ég byrja að vinna í nýju sumarvinnunni minni, annars fær það að bíða þar til ég fer í vaktafrí! ;)
Þar til næst!
Hilda
No comments:
Post a Comment