Tuesday, May 12, 2015

Ebay... og smá vandræði...

Ég minntist á það í síðustu færslu að ég ætti von á Ebay-sendingu...

hún skilaði sér í dag!

Tvær svona töskur! Önnur er "pink" og hin er "hot pink" og þær eru æði! Ég fékk stykkið á 3.34 dollara, sem eru þá ca 442 krónur...
Eitt af því skemmtilega við þær (fyrir utan fegurðina!) er að þegar þær eru ekki í notkun brýtur maður þær saman og rennir upp... en eins og sést á skýringarmyndinni verður "veskið" undan töskunni að litlum utanáliggjandi vasa þegar taskan er í notkun... algjör snilld!

Ég gerði heiðarlega tilraun að taka myndir af töskunum mínum, mér leiðist reyndar hvernig myndirnar koma út en ég hef einungis símann minn til að notast við (leggið 24. nóvember á minnið, þá verð ég þrítug og langar í "alvöru" myndavél!) ;)
Myndatökur á þessu heimili eru reyndar ekki alltaf það auðveldasta sem maður tekur sér fyrir hendur...


Svona komu þær, voða beisik umbúðir og svona... ekkert merkilegt svosem...

Búin að opna aðra þeirra, þarna sést t.d. hvernig "veskið" verður að utanáliggjandi vasa

Svo setti ég þær á gólfið til að reyna að ná betri myndum... Skuggi minn mætti á svæðið eins og sést...

... og hann ákvað að eigna sér aðra töskuna...

... og gaf ekkert eftir svo ég frestaði frekari myndatökum í bili...
Annars er planið að fara snemma að sofa í kvöld... þarf að vakna snemma í fyrramálið (ókei, í nótt!)... við sjáum til hvernig það mun ganga...

Heyrumst síðar!

Hilda

No comments:

Post a Comment