Monday, February 13, 2012

Ég held ég sé að falla á tíma!

Já, þessar endalausu spurningar hér og þar!

"Ertu ólétt? Nei ókei, þessi föt sem þú ert í gera magann þinn bara svo stórann!"
"Hvenær ætlarðu eiginlega að fara að koma með annað barn? Dóttir þín er orðin svo gömul!"
"Ætlarðu ekki að fara aftur í skóla? Þú ert orðin þetta gömul!"
"Hvenær ætlið þið eiginlega að fara að gifta ykkur? Þið eruð búin að vera saman svo lengi!"

Þessar fjórar spurningar eru þær sem dynja hvað mest yfir manni, og oftast frá sömu aðilunum. Ég held að viðkomandi aðilar séu alltaf að bíða eftir að fá öðruvísi svör, og ef/þegar þau koma að þá vilji viðkomandi tileinka sér það að hafa átt þar hlut að máli vegna þess að hann/hún spurði svo oft.

Það sem fólk virðist stundum ekki átta sig á, er að oft er þetta hreinasti dónaskapur! Hvað þykist fólk vita um mig eða ástæður þess að ég sé ekki ólétt akkúrat núna, kannski á ég í vandræðum með það og þá geta þessar endalausu óléttuspurningar verið særandi. En í mínu tilviki eru þær móðgandi, og þá sérstaklega þegar það er starað á magann á mér og mér tilkynnt að hann virðist stærri í þessari flík og því liggi svo vel við að spyrja um afurðir kanínuaðfara í bólinu!

Og mikil lifandis ósköp liggur á fólki að ég skuli ekki vera farin í háskóla! Ég skil ekki afhverju allt þetta fólk sé ekki bara farið fyrir mig, gefi mér nokkrar fínar gráður í gjöf! Þótt ég sé 26 ára þá er ég ekki komin á grafarbakkann, sem betur fer er menntakerfið hér á Íslandi svo frábært að fólk á öllum aldri hefur kost á því að skella sér á skólabekk -líka fólkið á grafarbakkanum!

Og blessuð giftingin... ætli maður endi ekki bara á því að splæsa í tvo miða til Vegas og fái Elvis til að pússa okkur saman. Gæti eflaust fundið einhvern fylliraft í einhverju spilavítinu til að vera vottur, case closed!

Þarf fólk að spyrja svona vegna þess að því sjálfu finnst maður vera að sóa lífinu? Finnst því það sjálft hafa sóað sínu eigin og vilji að við bætum það upp með því að gera það sem það vill að maður geri?
Eða er þetta fólk bara hreinlega blint á hvaða áhrif þessar spurningar geta valdið?

Já, maður spyr sig...

4 comments:

  1. :) já 26.. dísus, ég meina við förum á eftirlaun eftir "bara" 41 ár... hihihi

    ReplyDelete
    Replies
    1. nákvæmlega... ertu ekki örugglega búin að skrifa gestalistann fyrir jarðarförina þína? ;)

      Delete
  2. Úff ég kannast of vel við sumar af þessum spurningum... kannski bara í smá öðruvísi formi.. :Þ
    kv. Ólöf

    ReplyDelete
  3. þetta eru leiðindar spurningar og forvitið fólk sem vill vita hluti sem kemur því ekkert við :)

    ReplyDelete