Hef ekki komið með einn einasta punkt hér síðan í október... enda líka búið að vera nóg að gera síðan þá!
Dóttirin varð jú 5 ára og fékk tvær veislur... sú fyrri með vinkonunum úr leikskólanum og sú seinni með familíu og vinum. Svaka húllumhæ og hún var í skýjunum.
Í nóvember varð ég svo sjálf 27 ára, við gerðum nú ekkert sérstaklega í tilefni dagsins heldur fórum á jólahlaðborð með gömlu vinnunni hjá kallinum... var svaka fínt sko, fórum á Broadway sem var með ágætis show og svona.
Svo voru jólin og áramótin... dásamlegur tími alveg hreint!
En ég gerðist svo djörf að panta mér naglalakk á netinu rétt fyrir jólin. Ég var búin að vera með fast í hausnum að mig langaði í steingrátt naglalakk og sá ekkert sem mér líkaði nógu vel... þegar ég mundi eftir því að horfa í kringum mig þegar farið var í verslunarferðir...
Svo ég fór á þessa síðu og pantaði mér þetta gordjöss naglalakk
And I love it!
Ég elska naglalökk þessa dagana, langar að vera með alla heimsins liti á puttunum! Samt kann ég ekki að gera neitt, telst heppin ef ég set ekki voða mikið útfyrir... t.d. þá missti ég smá lakk yfir hálfan puttann á mér þegar ég var að setja á mig síðast... svipurinn á manninum mínum sagði allt sem segja þurfti...
Svo gerði ég nýlega þá uppgötvun að prjónfestan mín hefur tekið uppá því að breyta sér svo nú þarf ég að passa extra vel uppá að gera prjónfestuprufur (sem maður nennir sjaldnast að gera!) og nota minni prjón heldur en uppskrift gefur til kynna... sem þýðir að ég þarf að nota heilann pínu meira en ég hef þurft að gera vanalega... vesen!
Annars hafa framkvæmdir verið í gangi á heimilinu síðustu daga, skutla inn myndum og tilheyrandi þegar það er reddí!
mæli með að þú skoðir myndböndin hjá þessari http://www.youtube.com/user/cutepolish
ReplyDeleteMargar skemmtilegar hugmyndir og allar frekar auðveldar, jafnvel fyrir klaufa eins og okkur ;)