Sunday, September 29, 2013

Meistaramánuður!

Í dag skráði ég mig í Meistaramánuð... já, nú skal hefjast tiltekt á sjálfri mér!


Markmiðin mín, eins og þau standa núna, eru:

  • Hollur morgunmatur t.d. boost eða hafragrautur (er búin að vinna að því í langan tíma að geta borðað hafragraut, en það er eitthvað sem ég aldist ekki upp við)
  • Fara í zumba í hverri viku og byrja að fara út að labba (fínt að gera það á móti zumba til dæmis)
  • Skipuleg þrif og tiltekt á heimilinu
  • Skipulagður heimalærdómur -ekki vera með kveikt á facebook rétt á meðan!

Ástæða þess að ég setti inn "skipuleg þrif og tiltekt á heimilinu" er sú að gamla planið var ekki að ganga upp fyrir okkur námsmennina. Það gekk rosalega vel í fyrra þegar Stefán var í skóla en ég að vinna, en nú eru aðrir tímar og því þurfti að uppfæra ;)


Ég hef því miður ekki verið nógu dugleg við að mæta í Zumba og því hef ég sett mér það markmið að mæta í þá tíma amk á mánudögum, þeir dagar hafa verið að ganga hvað best upp með tilliti til stundataflanna okkar beggja. Zumba er eitt það skemmtilegasta sem ég hef prófað og því er það algjör synd hvað mætingin hjá mér hefur klúðrast síðustu mánuði.


Þrátt fyrir að ég sé bara búin að vera í skóla í mánuð er ég búin að sjá að suma daga næ ég að láta facebook trufla mig allverulega. Ég sinni jú náminu, en mætti einbeita mér að því betur að mínu mati og því set ég það sérstaklega inn í markmiðin mín.

Um daginn hélt ég Tupperware kynningu sem var þrælskemmtilegt uppátæki, og ég gæti vel hugsað mér að halda svona kynningu aftur síðar! Ég splæsti í ísmolabox sem ég er búin að ákveða að verði góður vinur minn þegar kemur að því að gera boost, þeas þegar ég nota ekki frosna ávexti og ber ;)

Ég ætla jafnvel að reyna að muna að skrifa hérna inn nokkrar línur og leyfa fleirum að fylgjast með hvernig mánuðurinn og markmiðin ganga hjá mér, og einhvernveginn finnst mér eins og ég hafi áður komið með loforð um að skrifa en gengið illa að standa við það! ;)

En þartil næst!
Hilda



1 comment: