Friday, January 3, 2014

Árið 2014...

... verður árið okkar!

Ég hef stundum sett mér áramótaheit sem ég hef ekki náð að standa við, svo hef ég einnig sett mér áramótamarkmið og náð að standa við nokkur... svo það hentar mér greinilega betur að kalla þetta markmið heldur en áheit! ;)

Í gær ákvað ég að taka áskorun, já hún tengist hreyfingu!
Ég var næstum búin að gleyma mér í gær, ég s.s. hugsaði of mikið um að ætla að byrja að ég gleymdi því að byrja! ;) En ég skellti í hnébeygjur og framstig rétt fyrir háttatímann, stefni á að gera meira í dag og gott ef ekki allt saman... sjáum til ;)

Á árinu ætla ég samt að reyna að gera mitt besta til að hreyfa mig, enda missti maður tökin algjörlega í desember og vigtin fór hærra heldur en hún hafði leyfi til, þessi árans vigt!

Þegar ég tók meistaramánuð í október náði ég ekki að standa við alveg allt, en það sem meistaramánuðurinn breytti fyrir mig var að ég er mikið duglegri að fá mér hafragraut á morgnana (fyrir utan desembermánuð, við duttum öll ofan í Cheerios-pakkann!)

En ég ætla líka að halda áfram að brosa, ég hef tekið eftir að það er alveg ótrúlegt hvað bros gerir í raun margt fyrir mann. Ég er samt ekki að tala um að ég ætli að skutla UHU á fésið og halda brosinu stanslaust uppi, heldur brosa eins oft og hægt er! ;)


Einnig ætla ég að nota Ebay mun meira en áður, gera verðsamanburð á hlutum og jafnvel notast meira við það þegar kemur að gjafakaupum og slíku enda alveg ótrúlegt hvað það getur munað miklu!


Annars hefst skólinn bráðum og miðað við kennsluáætlanirnar verður meira en nóg að gera svo ég sé fram á að blogga ekki mikið næstu mánuðina... en það er svosem ekkert nýtt! ;)

Heyrumst næst! ;)

1 comment: